Þórunn leiðir í Norðausturkjördæmi
Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmis samþykkti í dag framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Þórunn Egilsdóttir alþingismaður skipar fyrsta sæti listans og Líneik Anna Sævarsdóttir fyrrverandi alþingismaður skipar annað sætið. Í þriðja sætinu situr Þórarinn Ingi Pétursson, fyrrverandi formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Tillaga kjörstjórnar var samþykkt samhljóða með lófataki.
Í umræðum var lögð áhersla á mikilvægi málefna á borð við nauðsynlegar breytingar á menntakerfinu, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, jöfnuð í samfélaginu, áframhaldandi uppstokkun á fjármálakerfinu og uppbyggingu á samgöngukerfinu.
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi 2017:
Þórunn Egilsdóttir, Vopnafirði
Líneik Anna Sævarsdóttir, Fjarðabyggð
Þórarinn Ingi Pétursson, Grýtubakkahreppi
Hjálmar Bogi Hafliðason, Norðurþingi
Jóhannes Gunnar Bjarnason, Akureyri
Mínerva Björg Sverrisdóttir, Akureyri
Örvar Jóhannsson, Seyðisfirði
Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, Fljótsdalshéraði
Sverre Andreas Jakobsson, Akureyri
Birna Björnsdóttir, Norðurþingi
Gunnlaugur Stefánsson, Norðurþingi
Eiður Ragnarsson, Djúpavogshreppi
Petrea Ósk Sigurðardóttir, Akureyri
Vigdís Magnea Sveinbjörnsdóttir, Fljótsdalshéraði
Þorgeir Bjarnason, Fjallabyggð
Heiðar Hrafn Halldórsson, Norðurþingi
Svanhvít Aradóttir, Fjarðabyggð
Eiríkur Haukur Hauksson, Svalbarðsstrandarhreppi
Margrét Jónsdóttir, Þingeyjarsveit
Anna Sigrún Mikaelsdóttir, Norðurþingi



