Umhverfisráðherra býður til morgunverðar á Hallveigarstöðum
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, býður til morgunarverðarfundar fimmtudaginn 17. mars undir yfirskriftinni „Saman gegn sóun“. Á fundinum verður stefna ráðherra um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun, kynnt ásamt námsefni um úrgangforvarnir. Matarsóun verður í forgangi fyrstu tvö ár stefnunnar og verða ýmsar aðgerðir á því sviði kynntar á fundinum, m.a. ný vefgátt um matarsóun og nýtt kerfi strikamerkja sem stuðlað getur að minni sóun. Fundurinn verður haldinn á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, frá kl. 8.30-10:00 og verður boðið upp á morgunverð. Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst til thorunn.elfa@uar.is



