Af fjarskiptamálum
Branches

Í nútíma samfélagi eru fjarskipti ekki munaður, heldur grunn innviðir fyrir búsetu, rekstur og öryggi – hvort heldur sem er í Reykjavík eða Sveitarfélaginu Hornafirði.
Á málefnafundum Framsóknar og stuðningsmanna, í Öræfum og Suðursveit sérstaklega, viðruðu íbúar áhyggjur sínar af fjarskiptamálum í Sveitarfélaginu og langar mig að leggja orð í belg útfrá þeim umræðum sem sköpuðust þar.
Öræfi
Í Öræfum var ljósleiðarakerfi tekið í notkun 2010 þegar Öræfingar voru orðnir þreyttir á bið eftir ljósleiðara á vegum ríkisins og stofnuðu Fjarskiptafélag Öræfinga sem lagði ljósleiðara í sveitinni. Seinna var félagið sameinað Gagnaveitu Hornafjarðar. Þegar ljósleiðarakerfið í Öræfum var lagt á sínum tíma var það raðtengt um sveitina, ólíkt þeim ljósleiðarakerfum sem lögð voru síðar í sveitarfélaginu sem eru stjörnutengd. Þetta þýðir að ef eitthvað gerist í kerfinu, ljósleiðari er grafinn í sundur eða eitthvað þvíumlíkt að þá dettur netsamband af öllum bæjum, sem er ekki ákjósanleg staða.
Haustið 2021 var farið af stað í að athuga hvernig hægt væri að bæta kerfið og á 1008. fundi bæjarráðs þann 5. október 2021, lá fyrir tillaga frá Mílu um uppsetningu á búnaði til að umbreyta kerfinu. Kostnaður við búnaðinn áætlaður 7 milljónir. Lítið hefur þokast í málinu síðan, annað en erindi frá Mílu um yfirtöku á Gagnaveitu Hornafjarðar á 1112. fundi bæjarráðs þann 9. janúar 2024. Rúmlega ári síðar, eða þann 29. Júlí 2025, á 1182. fundi bæjarráðs, var tekin ákvörðun um að setja Gagnaveitu Hornafjarðar í söluferli. Síðan þá hefur ekkert verið fjallað um málið í fundargerðum sveitarfélagsins, en það er ljóst að sveitarfélagið hefði getað gert betur til að tryggja öruggt netsamband fyrir Öræfinga.
Suðursveit
Í Suðursveit er staðan sú að farsímasamband er víða gloppótt. Verst er það við Reynivelli og þar komum við að öðru máli sem hefur tekið sinn tíma í kerfinu. Á 67. fundi Umhverfis- og Skipulagsnefndar þann 1. nóvember 2023 var samþykkt að stofna lóð í landi Breiðabólsstaðar undir fjarskiptamastur og hús. Einhverjum mánuðum síðar var lóðin stofnuð, en síðar kemur í ljós að lóðin var of lítil og sækir Míla þá um stækkun á lóðinni. Sú umsókn var samþykkt á 87. fundi Umhverfis- og Skipulagsnefndar þann 23. október 2024. Í dag er ekki enn búið að skipta út þessari lóð, þó ég hafi það fyrir áreiðanlegum heimildum hjá Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun að það geti gerst á allra næstu dögum. Það er því ljóst að ýmislegt hefur farið úrskeiðis í þessu máli engum einum um að kenna, en það á ekki að standa á Sveitarfélaginu þegar svona umbótamál í þágu farskiptaöryggis og almanna hagsmuna liggur við. Við Reynivelli, eins og við þekkjum flest, er lítið sem ekkert símasamband og á Hótel Jökulsárlóni býr í dag umtalsverður fjöldi fólks sem getur ekki hringt eftir aðstoð ef eitthvað kemur uppá nema að vera í netsambandi.
Nes
Í Nesjum er víða dapurt farsímasamband, til að mynda í kringum Þveit og langleiðina inn að Hoffelli. Ef að fyrirhugaðar framkvæmdir Bláa Lónsins ná fram að ganga er ljóst að styrkja verður farsímasamband á þessu svæði svo um munar. Þar verðum við að læra af mistökum og vera tilbúin til samstarfs þegar kallið kemur og liðka fyrir framkvæmdum sem bæta innviði og öryggi fólks á svæðinu.
Hér hef ég aðeins nefnt fá dæmi um vandræðasvæði í fjarskiptum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þessi upptalning er ekki tæmandi og ljós er að fleiri svæði, til að mynda á Mýrum, í Lóni og jafnvel í þéttbýlinu á Höfn, hafa verið til vandræða. Sem samfélag, sem stærir sig af því að vera ferðaþjónustusamfélag, verðum við að gera betur.
Finnur Smári Torfason 6. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum
Greinin birtist fyrst a leidarhofdi.is 15. apríl 2026


