Ályktanir vorfundar miðstjórnar 2017

News

Hér að neðan má lesa ályktanir vorfundar miðstjórnar Framsóknarflokksins haldinn í Reykjavík 20. maí 2017:

Vorfundur miðstjórnar Framsóknar haldinn í Reykjavík 20. maí 2017 ályktar að hvorki Alþingi né ríkisstjórn geta vikið sér undan ábyrgð á því að Neyðarbrautinni sé lokað án þess að aðrir kostir séu í boði. Vorfundur miðstjórnar Framsóknar haldinn í Reykjavík 20. maí 2017 lýsir áhyggjum yfir stefnuleysi núverandi ríkisstjórnar í skóla-, heilbrigðis- og atvinnumálum. Vorfundur miðstjórnar Framsóknar haldinn í Reykjavík 20. maí 2017 ályktar að settur verði á fót vinnuhópur til að móta stefnu í málefnum ferðaþjónustunnar. Sú nefnd skal vera fullskipuð innan fjögurra vikna frá 20. maí 2017. Vorfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins haldinn í Reykjavík 20. maí 2017 felur haustfundi miðstjórnar sem haldinn verður 17.-18. nóvember að boða til flokksþings í fyrrihluta janúar 2018. Leggja á áherslu á undirbúning sveitarstjórnarkosninga. Þær kosningar eru næsta verkefni Framsóknarflokksins. Yfirlitsræða formanns á vorfundi miðstjórnar. Myndasafn af Facebook frá fundinum.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress