Ásrún Helga leiðir lista Framsóknar í Grindavík

Notifications

Framboðslisti Framsóknar í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar var samþykktur á félagsfundi sem haldinn var í Kvikunni menningarhúsi Grindavíkurbæjar 17. mars 2026.

Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar og grunnskólakennari leiðir listann.

,,Það er mér mikill heiður að fá að leiða þennan öfluga hóp fólks. Þetta eru einstaklingar með ólíkan bakgrunn, reynslu og styrkleika en það sem sameinar okkur er trúin á Grindavík og viljinn til að leggja okkar af mörkum til samfélagsins okkar” sagði Ásrún á fundinum.

Framboðslisti Framsóknar í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 er þannig skipaður:

1. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar og grunnskólakennari

2. Þorleifur Ólafsson, þjálfari, kennari og nemi

3. Inga Fanney Rúnarsdóttir, bæjarfulltrúi og ráðgjafi á velferðasviði

4. Elínborg Ingvarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur og umsjónarmaður ungmennaráðs Grindavíkurbæjar

5. Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur

6. Valgerður Ágústsdóttir, félagsráðgjafi MA

7. Jón Fannar Sigurðsson, stuðningsfulltrúi

8. Valgerður Jennýjar, leikskólaliði

9. Ása Björg Einarsdóttir, stuðningsfulltrúi og verðandi nemi í uppeldis- og menntunarfræði

10. Helgi Gylfason, tölvunarfræðingur

11. Siggeir Fannar Ævarsson, formaður Samfylkingarinnar í Grindavík

12. Bergur Hinriksson, rafvirki

13. Bríet Rose Raysdóttir, leikskólastarfsmaður

14. Guðmundur Grétar Karlsson, framhaldsskólakennari