Auglýst eftir frambjóðendum í Hafnarfirð

News

Framsóknarfélögin í Hafnarfirði auglýsa eftir áhugasömum frambjóðendum eða ábendingum um frambærilega frambjóðendur.

Fulltrúaráðsfundur í Framsóknarfélögunum í Hafnarfirði hefur falið uppstillingarnefnd að gera tillögu að framboðslista Framsóknarflokksins fyrir kosningar til bæjarstjórnar í Hafnarfirði í vor.

Uppstillingarnefnd auglýsir því hér með eftir framboðum eða ábendingum um frambærilega frambjóðendur til að taka sæti á lista Framsóknarflokksins. Frambjóðendur þurfa að uppfylla ákvæði laga um kjörgengi skv. 3. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna. Frambjóðandi skal hafa lögheimili í Hafnarfirði og hafa náð 18 ára aldri þegar kosning fer fram. Konur jafnt sem karlar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að gefa kost á sér. Uppstillingarnefnd lýsir einnig eftir áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að starfa með okkur fram að kosningum og vinna að ákveðnum málaflokkum eftir kosningar þó þeir gefi ekki kost á sér á framboðslistann. Þegar í bæjarstjórn er komið þarf að manna hinar ýmsu nefndir og ráð Hafnarfjarðarbæjar og má sjá lista um slíkt á vef bæjarins, www.hafnarfjordur.is Framboðsfrestur er til kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 12. febrúar 2014. Framboðum eða tilnefningum skal skila á netfangið 220framsokn@gmail.com eða til uppstillingarnefndar. Framsókn í Hafnarfirði er á Facebook og er hægt að koma ábendingum á framfæri þar með skilaboðum. Uppstillinganefnd skipa: Ingvar Kristinsson Þórey Matthíasdóttir Hildur Helga Gísladóttir Guðmundur Fylkisson Þórarinn Þórhallsson

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress