Aukin alþjóðaviðskipti
Branches

Ég tel að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Ein ástæða þess er að Ísland hafi aukin tækifæri í alþjóðaviðskiptum utan aðildar.
„Vits er þörf, þeim er víða ratar, dælt er heima hvað. Að augabragði verður, sá er ekki kann, og með snotrum situr.“ Þetta heilræði Hávamála minnir okkur á að víðsýni og dómgreind eru meðal mikilvægustu kosta. Fyrir Ísland, sem stendur á mörkum Evrópu og Norður-Ameríku, hefur farsældin einmitt byggst á því að horfa til beggja átta en loka dyrum að hvorugri.
Ísland hefur byggt velmegun sína á opnum samskiptum við umheiminn. Við eigum í miklum og farsælum viðskiptum við Norðurlöndin og Evrópu í gegnum EES-samninginn, en höfum jafnframt ræktað mikilvæg tengsl við Bandaríkin og Kanada á sviði viðskipta, öryggis- og varnarmála, vísinda og nýsköpunar. Þessi tvíþætta staða hefur reynst okkur vel.
Samhliða því hefur Ísland nýtt sjálfstæða stöðu sína. Við höfum gert fríverslunarsamning við Kína og, í gegnum EFTA, við Indland. Evrópusambandið hefur ekki sambærilegan fríverslunarsamning við Kína. Þá eru spennandi nýir markaðir að opnast í Suður-Ameríku og Asíu. Fróðlegt er að sjá hvernig Noregur er að sækja fram á þessum slóðum.
Við eigum ekki að loka okkur inni í tollabandalagi sem gæti takmarkað svigrúm Íslands til sjálfstæðrar viðskiptastefnu gagnvart ríkjum utan Evrópusambandsins. Á tímum þegar ný tækifæri í viðskiptum, vísindum og nýsköpun verða í vaxandi mæli til utan Evrópu, meðal annars í Norður-Ameríku og Asíu, þarf Ísland fremur að styrkja tengsl sín við fleiri markaði en færri. Fámenn þjóð eins og okkar nýtur sín best þegar hún getur byggt brýr, ekki reist múra.
Að mínu mati eigum við að nýta tímann núna til að ræða af yfirvegun hvernig við tryggjum hagsmuni Íslands til framtíðar. Við eigum að standa vörð um fullveldið, efla samstarf við Evrópu og um leið varðveita þá sérstöðu sem hefur gert okkur kleift að eiga náið samstarf við vinaþjóðir.
Íslendingar hafa aldrei náð árangri með því að velja annaðhvort austur eða vestur. Styrkur okkar hefur falist í því að vera sjálfstæð þjóð sem á vini víða, stundar frjáls viðskipti og sækir þekkingu og tækifæri um allan heim.
Utanríkisstefna framtíðarinnar þarf víðari skírskotun. Tækifæri eru að opnast vegna heilsársopnunar Norðurskautsins en siglingaleiðin frá Asíu til Norður-Ameríku styttist verulega. Landfræðilega er Ísland einmitt í kjöraðstöðu til að búa til ný tækifæri vegna þessa.
Hinn 29. ágúst kjósum við um hvort hefja eigi að nýju viðræður við Evrópusambandið. Þegar við metum framtíðina þarf mikilvægt leiðarljós að vera skýrt: Ísland má aldrei einangrast. Því þurfum við að vera víðsýn og tileinka okkur heilræði Hávamála.
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Greinin birtist fyrst 8. júlí 2026



