Boðað til Flokksþings Framsóknar

News

37. Flokksþing Framsóknar verður haldið 20.-21. apríl í Reykjavík.

Haustfundur miðstjórnar samþykkti um liðna helgi að boða til 37. Flokksþings Framsóknar helgina 20.-21. apríl í Reykjavík. Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs.

Flokksþing Framsóknarmanna ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans.

Mikilvægar dagsetningar:

  • 21. mars - viðmiðunardagur fulltrúatölu aðildarfélaga.

  • 5. apríl - lagabreytingum skal í síðasta lagi á miðnætti skilað inn til flokksskrifstofu.

  • 13. apríl - kjörbréfum skal í síðasta lagi á hádegi skilað inn til flokksskrifstofu.

Á flokksþingi skal kjósa formann Framsóknarflokksins og skal hann jafnframt vera formaður miðstjórnar flokksins. Þá skal á flokksþingi kjósa varaformann, ritara og tvo skoðunarmenn reikninga. Einnig skal kjósa tvo meðstjórnendur í laganefnd og tvo til vara. Ennfremur skal kjósa tvo meðstjórnendur siðanefndar og tvo til vara.

Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing fyrir hverja 15 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. Fulltrúatala skal miðast við félagatal eins og það liggur fyrir á skrifstofu flokksins 30 dögum fyrir flokksþing. Um fyrirkomulag kosninga fulltrúa fer eftir lögum einstakra aðildarfélaga. Aðildarfélög skulu tilkynna val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett.

Allir félagsmenn í flokknum hafa rétt til að sækja flokksþing og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Miðstjórnarmenn eiga sæti á flokksþingi með atkvæðisrétti.

Hátíðarskemmtun verður laugardagskvöldið 20. apríl.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress