
„Kópavogur, okkar heimili“ er ekki bara slagorð okkar hjá Framsókn. Það er sýn á samfélag þar sem fólki líður vel, fjölskyldur finna öryggi og við byggjum áfram upp bæ sem við getum öll verið stolt af.
Kosningar snúast um framtíð samfélagsins okkar. Þær snúast um heimilin, börnin, foreldrana og eldri borgara – fólkið okkar. Þær snúast um þjónustuna sem við byggjum upp saman og þau gildi sem við viljum að móti Kópavog til framtíðar.
Við höfum fundið sterkan vilja hjá fólki til að halda áfram að byggja upp öflugt samfélag þar sem ábyrg stjórnsýsla, stöðugleiki og skýr framtíðarsýn ráða ferðinni. Það er ekki sjálfsagt að sveitarfélag sé vel rekið, með góða þjónustu, traustan fjárhag og sterka innviði. Slíkur árangur verður til með markvissri vinnu, ábyrgum ákvörðunum og fólki sem hefur reynslu og festu til að takast á við verkefnin.
Kópavogur hefur á síðustu árum tekið mikilvæg skref í uppbyggingu leik- og grunnskóla, íþróttastarfs og velferðarþjónustu. Við í Framsókn höfum unnið að því að skapa Kópavogsmódelið, bætt þjónustu við fjölskyldur og lagt áherslu á að halda álögum í hófi. Við viljum halda áfram á þeirri braut með raunhæfum lausnum, ábyrgð og stöðugleika fremur en háværum loforðum og skyndilausnum. Traust bæjarbúa er dýrmætt og það þarf að ávinna sér það með heiðarleika, ábyrgð og góðum verkum.
Á lista Framsóknar í Kópavogi fer saman reynsla og nýjar raddir. Þar er fólk með víðtæka reynslu úr stjórnun, rekstri, menntamálum og samfélagsþjónustu ásamt fólki með ferska sýn og metnað til góðra verka.
Við hvetjum fólk til að nýta kosningarétt sinn og vanda valið. Ef þú verður að heiman á kjördag geturðu kosið utan kjörfundar hjá sýslumanni.
Á kjördag óskum við eftir stuðningi ykkar til áframhaldandi uppbyggingar í Kópavogi.
Orri Vignir Hlöðversson bæjarfulltrúi og er í 1.sæti Framsóknar í Kópavogi
Björg Baldursdóttir bæjarfulltrúi og er í 2.sæti Framsóknar í Kópavogi



