„En svo kom áfallið – hretið“

Branches

Veturinn er genginn í garð. Dagarnir styttast, skammdegið færist yfir landið og fyrstu vetrarhretin minna á sig. Jónas Hallgrímsson lýsti þessum árstíðaskiptum í ljóðinu Grátittlingurinn. Í ljóðinu víkja ljúfir haustvindar fyrir vetrarhörkunum og það reynir á þrautseigju en líka umhyggju. Þannig er því einnig farið í efnahagslífinu. Íslenska þjóðarbúið stendur frammi fyrir miklum áskorunum.

Verðbólgan mælist enn of há og stýrivextir eru 8%. Háir vextir íþyngja heimilum og fyrirtækjum og draga úr fjárfestingu. Á sama tíma ríkir óvissa í alþjóðahagkerfinu vegna stríðsátaka, viðskiptahindrana og hækkandi orkukostnaðar. Það reynir því á efnahagslegan viðnámsþrótt þjóðarinnar.

Verðbólgan er einn mesti óvinur heimilanna. Hún rýrir kaupmátt, eykur ójöfnuð og grefur undan stöðugleika. Við verðum að ná henni niður að 2,5% markmiði Seðlabankans. Stöðugt verðlag og lægri vextir eru forsenda bættra lífskjara.

Ljóst er að heil tvö ár hafa glatast í baráttunni við verðbólguna með miklum kostnaði fyrir heimili, fyrirtæki og stjórnvöld. Því verður ríkisstjórnin að setja hjöðnun verðbólgu í algjöran forgang og allar hennar aðgerðir eiga að miðast við það. Ég fagna því að ríkisstjórnin hafi hlustað á tillögur okkar í Framsókn um að takmarka hækkanir krónutölugjalda við 2,5%. Það er skref í rétta átt til að ná utan um verðbólguvæntingar, en betur má ef duga skal. Endurskoða þarf frekari álögur á heimilin, svo að þær verði ekki verðbólguhvetjandi. Að sama skapi verður hagkerfið að vaxa til að tryggja velferð.

Á vefsíðunni utreikningur.is kemur fram að tekjulægri heimili bera hlutfallslega mun þyngri byrðar af fjárlagafrumvarpinu en tekjuhærri heimili. Það er ósanngjarnt. Sérstaklega þegar háir vextir bitna einmitt þungt á ungum fjölskyldum. Langvarandi háir vextir hafa aukið greiðslubyrði heimila og vaxtakostnað ríkissjóðs um tugi milljarða króna. Tíminn er dýr þegar vextirnir eru háir. Nú þarf að nýta hann betur með því að senda skýr skilaboð með fjárlagafrumvarpinu.

Í Grátittlingnum er sagt frá ungum dreng sem bjargar litlum fugli úr frostinu þegar hann leggst á kalt svellið, leggur munn sinn á væng fuglsins og losar vænginn sem frostið hafði fest. Þegar fuglinn flýgur frjáls á ný situr drengurinn eftir „sárglaður og með tárum“. Í þessari fallegu frásögn felst mikilvæg áminning um að jafnvel þegar frostið er harðast geta umhyggja og góð verk breytt miklu. Við í Framsókn erum tilbúin að leggja okkar af mörkum. Nú er tími samvinnu og samráðs. Með samstöðu getum við sigrast á erfiðum áskorunum. Veturinn kann að verða langur, en hann er ekki eilífur. Það er okkar sameiginlega verkefni að tryggja að þegar vorar standi íslensk heimili og íslenskt samfélag sterkari en áður.


Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.

Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 29. október 2026

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress