Engar hamfarir hér
Branches

Síðustu daga fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefur kosningabaráttan í bænum verið kröftug. Flokkarnir keppast við að fanga athygli kjósenda með ýmsum hætti og misgáfulegum fullyrðingum. Pólítískir andstæðingar núverandi meirihluta hafa lýst áhuga sínum á að kollvarpa þeirri stefnu sem Kópavogur hefur verið á síðustu fjögur árin, enda hrópa frambjóðendur þeirra á háa C-inu að hér sé allt í skrúfunni og láta ýmsar dómsdagslýsingar fylgja því. Það er allt reynt. Meira að segja þingmenn úr Reykjavíkurkjördæmi eru farnir að gagnrýna stefnu Kópavogsbæjar; einstaklingar sem hafa enga tilfinningu fyrir okkar dásamlega bæ. Þó svo að ekkert sé fullkomið, og það á einnig við hér í Kópavogi, þá tel ég að Kópavogsbúar upplifi ekki þessar meintu hamfarir.
Góður grunnur
Auðvelt er að gleyma sér í rökræðum um sértækar aðgerðir, útspil og stefnur. Hins vegar vita Kópavogsbúar hvað skiptir mestu máli. Það er góð grunnþjónusta og skynsamur rekstur sveitarfélagsins. Nýverið kom fram að mesta ánægjan með snjómokstur sé í Kópavogi. Götuhreinsun er góð. Sundlaugarnar eru í heimsklassa, nóg er um bílastæði og gjöld eru hófleg. Skynsöm fjármálastjórn hefur skilað okkur sterkum ársreikningi og nánast 5 milljarða afkomu. Við höfum lagt áherslu á að tannhjól sveitarfélagsins og samfélagsins okkar gangi áfram án óþarfa inngripa, sem láta það hökkta eða jafnvel stoppa. Skynsemi og ábyrgð hefur verið leiðarljós í vinnu Framsóknar í Kópavogi.
Ágóðinn til samfélagsins
Staða Kópavogs er sterk og við í Framsókn í Kópavogi höfum lagt áherslu á að það skili sér til íbúanna. Síðustu ár hafa reynst erfið fjárhagslega og það virðist ætla að halda áfram í óákveðinn tíma. Í stað þess að fylgja fordæmi skattaglaðrar ríkisstjórnar hefur meirihlutinn í Kópavogi ákveðið að feta aðra leið. Nákvæmlega andstæðan á sér stað í Kópavogi þar sem t.d. álagningarprósenta fasteignagjalda hefur lækkað um 25% á einu kjörtímabili. Í Kópavogi eru fasteignagjöld þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Svona mætum við íbúum á erfiðum tímum. Við setjum sárabindið þar sem blæðir. Minnihluti núverandi bæjarstjórnar hefur kallað það tapað fé fyrir Kópavog og kallar eftir frekari blóðtöku. Hins vegar kjósum við í Framsókn að horfa á lækkun fasteignagjalda sem plús fyrir íbúa, ekki mínus fyrir bæinn. Þá hefur einnig verið ákveðið að takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5% á barnafjölskyldur.
Flokkur sem þorir
Á þessu kjörtímabili hefur meirihlutinn tekið róttækar ákvarðanir til umbóta. Besta dæmið af mörgum er án efa tíðrætt Kópavogsmódel í leikskólamálum, sem Framsókn átti frumkvæði að með formennsku í leikskólanefnd bæjarins í samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn en fyrst og fremst fagfólk í leikskólunum sjálfum. Kópavogsmódelið var mikið gagnrýnt til að byrja með, en við sáum að kerfið var komið í þrot og róttækar umbætur voru nauðsynlegar. Í stað þess að óttast breytingar fórum við af stað og héldum ótrauð áfram. Þorið til að fara í stórar breytingar verður sífellt sjaldgæfara í íslenskum stjórnmálum. Það sést þó ekki hjá okkur í Kópavogi.
Í dag horfa flest sveitarfélög til okkar og þess mikla árangur sem við sjáum Kópavogsmódelið skila leikskólakerfinu, fagfólkinu og auðvitað börnunum sjálfum. Við stærum okkur nú af því að 0 lokunardagar áttu sér stað ásamt því að 12 mánaða börn eru nú farin að fá leikskólavist í bænum.
Við í Framsókn í Kópavogi viljum halda áfram á þessari vegferð. Viljir þú það líka þá hvet ég þig til að setja X við B 16. maí næstkomandi.
Gunnar Sær Ragnarsson. Höfundur er varabæjarfulltrúi og situr í 3. sæti á lista Framsóknar í Kópavogi.



