Er ferðamannastraumurinn bóla sem gæti sprungið?

News

Hæstv. forseti. Ferðamennska hefur stóraukist hér á landi undanfarin ár og er það ánægjuleg þróun þó að sumum þyki nóg um. En staðreyndin er sú að um 30% af landsframleiðslu kemur úr ferðamannageiranum. Auknum ferðamannastraumi fylgir aukið álag á alls konar þætti, suma fyrirséða og aðra ófyrirséða. Aukið álag á landsvæði hefur þegar komið í ljós og hafa stjórnvöld brugðist við að hluta til með breytingum á lögum um náttúruvernd. Álag á vegi landsins hefur aukist og kemur það aðallega niður á umferðaröryggi sem meðal annars hefur birst í auknum fjölda umferðarslysa hjá ferðamönnum sem ekki eru vanir íslensku gatnakerfi með of mörgum einbreiðum brúm, mjóum vegum auk malarvega og fleira.

Álag á vegi jókst einnig til muna eftir að strandsiglingar ríkisins voru aflagðar og þungaflutningar voru færðir á gatnakerfið. Það mætti að mínu mati taka snúning á því í umræðunni hvort flutningur á þungavöru um strendur landsins væri betur kominn sjóleiðis til að minnka álag á vegi. Dreifing ferðamanna um landið þyrfti að vera meiri og koma ferðafólks hefur nær eingöngu verið í gegnum Keflavík sem stýrir fólki meira um suðvesturland.

Egilsstaðaflugvöllur er kostur sem gera á tilraun með í vor með móttöku ferðamanna í sex mánuði fyrst í stað og ætti það að dreifa álaginu á landið og auka umsvifin fyrir austan og norðan. Það verður spennandi að sjá hvernig það gengur.

Koma farþegaskipa hefur aukist, en stærri hafnir landsins eru betur í stakk búnar að taka á móti þeim. Þó hefur minni farþegaskipum fjölgað og er ágætisreynsla að skapast í hringferðum slíkra skipa í kringum landið með viðkomu á ýmsum stöðum. Er ferðamannastraumurinn bóla sem gæti sprungið? Spyr sá sem ekki veit. Gakktu hægt um gleðinnar dyr, segir einhvers staðar, en þó örugglega og glaðlega.

Sigurður Páll Jónsson — í störfum þingsins 2. febrúar 2016.  

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress