Excel-glaðir embættismenn

News

„Virðulegi forseti. Í gær hófust strandveiðar í blíðskaparveðri í flestum fjórðungum og alls staðar var fullur sjór af fiski. Í morgun var hvasst á Suðurnesjum þegar smábátar héldu til veiða út í hvítfyssandi öldurnar, brenndir af þeirri staðreynd að brælur síðustu tvö vor kostuðu svæðið 200 tonna minni úthlutun á þessu ári.

Kerfið var fyrst sett upp þannig að með svæðaskiptingu væri komið í veg fyrir að þrálátar brælur á einu svæði yrðu til þess að potturinn yrði ekki veiddur á öðru svæði, en í dag er greinilega breytt áhersla. Við getum farið í excel-leik og tekið síðustu fjögur ár í stað síðustu tveggja, eins og embættismenn virðast hafa gert. Meðalafli á svæði D sem nær frá Borgarfirði að vestan og að Hornafirði að austan síðustu fjögur ár var 1.418 tonn og mest voru veidd 1.550 tonn en úthlutun á þessu ári er 1.300 tonn. Júlíafli í fyrra var 450 tonn en úthlutun á þessu ári er 195 tonn. Í ágúst í fyrra var aflinn 177 tonn en í ár er úthlutun 130 tonn. Meðalafli á bát var minnstur á svæði D árið 2015, þ.e. 171 tonn, meðan hann var um 300 tonn og upp í 400 tonn á hinum svæðunum. Meðalveiði á bát var einnig minnst á svæði D, 11,3 tonn, á meðan hún var 12,6 og upp í 15,8 tonn á öðrum svæðum.

Þrátt fyrir miklu meiri fiskigengd og 400 tonna aukningu á strandveiðipotti eru í nýrri úthlutun tekin 200 tonn á svæði D og áfram gert ráð fyrir 11,3 tonna meðalveiði á bát en 15,1 og upp í 15,8 tonn á hinum svæðunum. Svo virðist sem enn séu bláeygðir stjórnmálamenn að stimpla inn hráar tölur sem excel-glaðir embættismenn leggja á þeirra borð.“

Páll Jóhann Pálsson í störfum þingsins 3. maí 2016.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress