Félagsleg heilsa og árangur í þágu eldri íbúa Kópavogs

Branches

Þegar líður að lokum kjörtímabils er eðlilegt að líta yfir farinn veg og skoða hvaða áherslur hafa mótað þróun samfélagsins okkar. Í Kópavogi hefur á síðustu árum verið lögð markviss áhersla á að efla virkni, félagsleg tengsl og þátttöku eldra fólks í samfélaginu. Félagsleg heilsa snýst í grunninn um tengsl fólks við aðra, tilfinningu fyrir að tilheyra og tækifæri til að taka þátt í samfélaginu. Þegar rætt er um málefni eldra fólks snýst það því ekki eingöngu um þjónustu heldur líka um að skapa tækifæri til samveru og virkni. Á þessu kjörtímabili hefur velferðar- og mannréttindaráð lagt sérstaka áherslu á að styrkja slíkt starf og gera félagsstarf aðgengilegt fyrir fleiri.

Meðal þess sem lögð hefur verið áhersla á eru helgaropnanir í félagsmiðstöðvum eldra fólks. Markmiðið er að draga úr einangrun og skapa fleiri tækifæri til samveru og þátttöku. Slíkar breytingar skipta máli fyrir marga sem vilja taka þátt í samfélaginu en kvíða stundum helgum þegar félagsmiðstöðvar voru lokaðar.
Verkefnið Virkni og vellíðan er annað gott dæmi um þessa þróun. Verkefnið hefur vaxið hratt frá því það hófst og í dag taka rúmlega 600 eldri Kópavogsbúar þátt í starfseminni. Sú mikla þátttaka sýnir skýrt að áhersla á heilsueflingu, hreyfingu og samveru er bæði mikilvæg og eftirsótt.

Að frumkvæði undirritaðrar var á dögunum einnig haldið Virkniþing í Kórnum í Kópavogi þar sem fjöldi fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka kynntu þjónustu sína fyrir eldri íbúum bæjarins. Markmið Virkniþingsins er að gera þá fjölbreyttu þjónustu og þau tækifæri sem standa eldra fólki til boða sýnilegri og auðvelda fólki að finna leiðir til þátttöku. Þingið var afar vel sótt og viðbrögð gesta mjög jákvæð. Slíkir viðburðir sýna vel hversu mikilvægt samstarf sveitarfélags, félagasamtaka og fyrirtækja er þegar kemur að því að byggja upp samfélag þar sem fólk getur verið virkt á öllum aldri. Það var ljóst eftir þetta fyrsta þing að það er komið til að vera.

Við megum ekki gleyma því að ekkert gerist af sjálfu sér og því skiptir máli að þeir sem fara með ábyrgð á stjórnun samfélagsins hafi skýra sýn á hvað skapar raunveruleg lífsgæði, svo sem þátttaka, virkni og góð félagsleg tengsl.

Fram undan eru verkefni í þessum málaflokki og svo sannarlega er áfram verk að vinna. Með markvissum áherslum á heilsueflingu, virkni og samveru getum við styrkt Kópavog sem samfélag þar sem gott er að búa og eldast.

Björg Baldursdóttir, formaður velferðar- og mannréttindaráðs og bæjarfulltrúi Framsóknar

Greinin birtist fyrst í Kópavogspóstinum 26. mars 2026