Fólkið okkar fyrst
Branches

Kæru íbúar.
Ég hef velt fyrir mér hvað gerir samfélag gott. Að mínu mati er það fólkið á staðnum. Öflugt samfélag byggir ekki aðeins á innviðum og atvinnulífi heldur fyrst og fremst á samheldni, samvinnu og skýrri framtíðarsýn. Þegar íbúum líður vel, vex samfélagið með þeim. Þess vegna viljum við setja fólkið okkar í forgrunn – því þar liggur grunnurinn að farsæld.
Atvinnutækifæri eru ein af lykilforsendum búsetu. Við þurfum að standa vörð um þau störf sem fyrir eru og sækja fram í að laða að ný. Þennan samtakamátt þurfum við að nýta til að skapa fjölbreytt heilsárs störf sem auka starfsöryggi og gera svæðið að raunhæfum og eftirsóknarverðum valkosti til búsetu.
En samfélag er meira en störf, það snýst líka um tengsl. Tilfinningaleg tengsl við fólk og staði eru gríðarlega mikilvæg. Við þurfum að skapa aðstæður þar sem fólk hittist, tengist og tekur þátt – hvort sem er í menningu, félagsstarfi eða daglegu lífi. Með aukinni nýtingu félagsheimila og markvissum stuðningi við menningu getum við styrkt þennan grunn. Í sveitarfélagi sem hefur upplifað ákveðin umskipti er sérstaklega mikilvægt að rækta samheldni og traust. Það er einmitt sú tilfinning að tilheyra sem fær fólk til að búa hér áfram, og aðra til að snúa aftur á heimaslóðir – til fjölskyldu, vina og samfélags sem tekur vel á móti þeim.
Framtíðarsýn okkar þarf að vera skýr og metnaðarfull. Við eigum ekki að sætta okkur við stöðnun heldur horfa til uppbyggingar, nýrra tækifæra og betri lífsgæða. Með því að efla tækifæri fyrir núverandi íbúa gerum við sveitarfélagið um leið aðlaðandi fyrir nýja íbúa og gesti.
Kosningar marka ákveðin tímamót, og við stöndum á tímamótum þar sem mikilvægt er að horfa fram á veginn af ábyrgð og metnaði. Fjögur ár er kannski ekki langur tími í stóra samhenginu en þegar ég gekk á kjörstað í síðustu sveitarstjórnarkosningum var ég gift og nýbúin að eignast mitt fyrsta barn. Þegar ég geng á kjörstað þann 16. maí 2026 verður það sem einstæð þriggja barna móðir. Það er hægt að breyta mörgu á fjórum árum!
Með fólkið okkar í forgrunni, samtakamátt að leiðarljósi og skýra sýn á framtíðina getum við byggt samfélag sem stendur sterkt – nú og til framtíðar.
Fólkið okkar fyrst, og þá mun allt annað fylgja.
Ágústa Rós Ingibjörnsdóttir
skipar 4. sæti Framsókn og aðrir framfarasinnar í Húnabyggð



