Forgangsmál að afgreiða heilbrigðisáætlun

News

,,Hæstv. forseti. Ég ætla að ræða annað af forgangsmálum okkar Framsóknarmanna á þessum þingvetri en það er heilbrigðisáætlun fyrir Ísland.

Markmið tillögunnar er að fela hæstv. heilbrigðisráðherra að hefja vinnu við heilbrigðisáætlun og hún verði unnin í samráði við fagfólk í heilbrigðisstéttum. Þar verði m.a. tekið tillit til landfræðilegra þátta eins og samgangna og fjarlægða milli byggðarlaga. Jafnframt verði tekið tillit til íbúaþróunar á starfssvæðum heilbrigðisstofnana, aldurssamsetningar íbúa, staðsetningar sjúkrabifreiða, aðgangs að sjúkraflugi, fjölda ferðamannastaða og sumarhúsabyggða, svo eitthvað sé nefnt.

Við gerð áætlunar verði jafnframt litið til þess hvort sóknarfæri sé í því að nýta auð sjúkrarými á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og létta þar með álagi af Landspítala. Heilbrigðisáætlunin skuli vera lögð fyrir Alþingi í desember 2017.

Í síðustu kosningabaráttu töluðu allir eða flestallir flokkar um að heilbrigðismálin ættu að vera efst á forgangslista stjórnmálanna eftir kosningar. Nú sjáum við þingmálaskrá nýrrar ríkisstjórnar og ef litið er á þingmálaskrá hæstv. heilbrigðisráðherra sést engin heilbrigðisáætlun á þeim lista. Það er einstaklega undarlegt þar sem hv. þingmenn Bjartrar framtíðar á síðasta kjörtímabili gagnrýndu þáverandi stjórnarflokka fyrir stefnuleysi í málaflokknum. Það er einnig einstaklega undarlegt því að undanfarin mörg ár hefur vantað stefnumótun í þennan málaflokk. Það hefur m.a. landlæknir fjallað um í fréttum og annars staðar. Einnig kom það fram í þingskjali sem ég lagði fyrir hæstv. heilbrigðisráðherra á síðasta kjörtímabili að stefnumótun vantaði í málaflokkinn en unnið væri að drögum. Þau drög komu aldrei fyrir Alþingi.

Ég vona að þingmenn í öllum stjórnmálaflokkum leggi okkur Framsóknarmönnum lið við að koma þessu mikilvæga máli í gegnum Alþingi."

Elsa Lára Arnardóttir í störfum þingsins 26. janúar 2017. 

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress