Frá hugsjónum til athafna
Branches

Á Laugarbakka í Miðfirði kom saman öflugur hópur framsóknarfólks um liðna helgi, fullur af krafti og trú á framtíðina. Þar samþykkti miðstjórn flokksins stjórnmálaályktun með skýrum skilaboðum til ríkisstjórnarinnar: Setjið heimilin í forgang! Ályktunin markar jafnframt næstu skref í uppbyggingu Framsóknar.
Tvö mikilvæg ár hafa glatast í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Verðbólga er ekki aðeins hagfræðilegt viðfangsefni. Hún er réttlætismál því hún kemur verst niður á þeim sem minnst svigrúm hafa. Framsókn hefur lagt fram Heimilissáttina. Við viljum takmarka hækkanir kílómetragjalds, kolefnisgjalds og krónutölugjalda við 2,5%, halda vaxtabótum árið 2027 og efla samstarf um stöðugleika í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin verður að sýna heildaráhrif skatta- og gjaldahækkana ásamt skerðingum á fjölskyldur áður en ákvarðanir eru teknar. Það er ekki nóg að ná jafnvægi í ríkisfjármálum ef jafnvægið hverfur úr heimilisbókhaldinu.
Við í Framsókn stöndum með farsæld barna. Því verður ríkið að tryggja sveitarfélögum fjármagn til að standa við farsældarlögin. Ungt fólk á að hafa raunveruleg tækifæri til að eignast heimili og byggja upp sjálfstæða framtíð. Framsókn vill bæta kjör tekjulægstu eldri borgaranna með sérstakri mánaðarlegri uppbót, í samræmi við tillögu Landssambands eldri borgara. Þau sem byggðu upp samfélagið okkar eiga að búa við fjárhagslegt öryggi og reisn á efri árum. Þessar aðgerðir verða fjármagnaðar með betri forgangsröðun, betri hagstjórn og meiri landsframleiðslu.
Við erum ein þjóð, í einu landi. Samgöngur, orka, menntun og heilbrigðisþjónusta eiga að skapa tækifæri um allt land. Við viljum verja loftbrúna, efla fæðuöryggi og tryggja ferðaþjónustunni fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi. Landsvirkjun skal áfram vera í eigu þjóðarinnar og njóta faglegrar og sjálfstæðrar stjórnar.
Samvinnuhugsjónin er svar við verkefnum samtímans. Framsókn var stofnuð til að skapa tækifæri fyrir marga, ekki verja forréttindi fárra. Við setjum manngildi ofar auðgildi og trúum á samvinnu í stað sundrungar.
Krafturinn í flokknum er mikill. Framsókn hefur kjörna fulltrúa um allt land og tekur þátt í meirihlutasamstarfi í fjórtán sveitarfélögum. Nú setjum við á laggirnar átta málefnahópa sem móta framtíðarstefnu okkar, meðal annars um lífskjör ungs fólks, menntun, byggðir, fæðufullveldi og gervigreind. Við ætlum að opna flokkinn fyrir nýjum hugmyndum og nýju fólki.
Í næsta mánuði verður Framsókn 110 ára. Best heiðrum við þau sem ruddu brautina með því að halda áfram verkinu. Framtíð Framsóknar ræðst ekki aðeins af því sem við höfum gert, heldur því sem við ætlum að gera.
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu



