Fyrstu fundirnir í fundarröð Framsóknar um Evrópusambandið heppnuðust vel

Framsókn hefur staðið fyrir opnum fundum um Evrópusambandið undir yfirskriftinni „Hagsmunir Íslands að leiðarljósi“. Fundirnir eru liður í umræðu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á ný.

Á fundunum var fjallað um stöðu Íslands í alþjóðlegu samhengi, gjaldmiðilsmál, lýðræði, sjálfsákvörðunarrétt, auðlindaforræði, samkeppnishæfni og möguleg áhrif ESB-aðildar á íslenskt samfélag og efnahagslíf.

Opinn fundur fór fram á Akranesi í gærkvöldi þar sem erindin voru skýr og fræðandi og fundargestir tóku virkan þátt í umræðum að loknum framsögum. Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem, fjallaði um mikilvægi útflutningstekna fyrir íslenskt hagkerfi og stöðu smáþjóðar í harðnandi alþjóðlegri samkeppni. Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, fór yfir gjaldmiðilsmál, evruna og möguleg áhrif ESB-aðildar á íslenskt efnahagslíf. Þá var Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi, með erindi um lýðræði, sjálfsákvörðunarrétt og áhrif evrópsks valdakerfis á íslenska stjórnsýslu.

Framsókn stóð einnig fyrir opnum fundi um sama málefni í Reykjavík. Þar fluttu erindi Frosti Sigurjónsson um ESB, evru og Ísland, Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, undir yfirskriftinni „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur um framtíð íslensks landbúnaðar, Magnea Gná Jóhannsdóttir um spurninguna „Hver stjórnar Íslandi? – íslenskur almenningur eða evrópskt valdakerfi“ og Sigurður Ingi Jóhannsson alþingismaður um mikilvægi auðlindaforræðis fyrir Ísland.

Það sem stóð upp úr á fundunum var mikill áhugi fundargesta og líflegar spurningar og umræður að loknum erindum. Fram kom að mikilvægt væri að Íslendingar kynntu sér málin vel og ræddu þau af yfirvegun áður en teknar yrðu mikilvægar ákvarðanir um framtíðarstefnu landsins.

Við þökkum fyrirlesurum, fundargestum og öllum þeim sem komu að skipulagningu. Þessir fundir væru mikilvægur þáttur í lýðræðislegri umræðu og stuðluðu að því að ólík sjónarmið kæmu fram, með hagsmuni Íslands að leiðarljósi.

Eftir verslunarmannahelgi mun Framsókn halda áfram með fundarröðina á fleiri stöðum vítt og breitt um landið.

Dagskrá kemur síðar.