Gæti ein meðferð sparað ævilanga umönnun?

News

Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, vakti máls í störfum þingsins á byltingunni í lyfjavísindum sem nú á sér stað í heiminum með gena- og frumumeðferðum. Tók hún þátt í pallborði sem formaður velferðarnefndar Alþingis um þau tækifæri og áskoranir sem felast í þessum meðferðum.

„Sannarlega áhugavert viðfangsefni. Sérhæfð gena, frumu eða vefjameðferð, á sjaldgæfum jafnt sem algengum sjúkdómum geta umbreytt lífi sjúklinga og kalla á alveg nýja hugsun í heilbrigðiskerfinu. Það þarf að endurhugsa verkferla og mat á ávinningi - út frá siðferði, fræðum og fjármögnun,“ sagði Líneik Anna.

„Áskoranirnar í ákvarðanatöku í þessum efnum eru ekki í fjarlægri framtíða, þær eru að mæta okkur hér og nú. Það sem mér er efst í huga eftir ráðstefnuna er mikilvægi þess að íslenskt samfélag og íslenska heilbrigðiskerfið sé virkur þátttakandi í breytingunum.

Í þessu verkefni álít ég að samvinna norðurlandanna sé algjör forsenda árangurs, til að greina tækifærin, meta ávinning, forgangsraða, skipta sérhæfðum verkefnum og samræma verklag. Samvinna í 28 milljóna norrænu samfélagi ætti að geta náð utan um verkefnið bæði faglega og fjárhagslega meðan árangurinn gæti hreinlega orðið tilviljanakenndur ef við vinnum hvert í okkar horni.“

„Við Íslendingar höfum allt að vinna og líka ýmsu að miðla inn í svona samstarf eins og góðri þekkingu á erfðaefni íslensku þjóðarinnar.

Ákvörðun um meðferðir af þessu tagi getur þurft að byggja á miklu breiðara heilsutæknilegumati en við hefðbundnar lyfjameðferðir og meðferðin sjálf kallar oft á þverfaglegt samtarf. Gæti ein meðferð sparað ævilanga umönnun?,“ sagði Líneik Anna að lokum.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress