Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna

Branches

Ríkisstjórnin segist vilja stuðla áfram að farsæld allra barna og tryggja að börn og foreldrar hafi aðgang að samþættri þjónustu. Þá hlýtur hún jafnframt að tryggja að sú uppbygging sem þegar hefur átt sér stað haldi áfram.


Sveitarfélög hafa lagt mikla vinnu í innleiðingu Farsældarlaganna, þróað nýtt verklag og styrkt þjónustu við börn og fjölskyldur. Þeirri vinnu er þó enn ekki lokið, eins og Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á í úttekt sinni.


Samt er í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 gert ráð fyrir að tímabundið 1,1 milljarðs króna framlag til sveitarfélaganna vegna innleiðingar laganna falli niður. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur meðal annars bent sérstaklega á þessa stöðu og kallað eftir samtali við ríkið um áframhaldandi fjármögnun.


Börn með miklar og flóknar þjónustuþarfir eiga ekki að bíða mánuðum eða árum saman eftir sérhæfðum úrræðum og ríkið verður að tryggja að þau úrræði séu til staðar. En svarið við skorti á slíkum úrræðum getur ekki verið að veikja um leið þá þjónustu sem byggð hefur verið upp til að grípa börn fyrr og koma í veg fyrir að vandinn verði meiri.


Kastað inn handklæðinu


Við setningu Farsældarlaganna var gert ráð fyrir að raunverulegur kostnaður og ávinningur yrðu metin á innleiðingartímanum og fjárþörf sveitarfélaganna síðan endurmetin. Sú kostnaðargreining liggur ekki fyrir með þeim hætti sem gert var ráð fyrir og innleiðingunni því enn ólokið.


Það er því undarlegt að gera annmarka á innleiðingunni að rökum fyrir því að draga úr fjármögnun áður en verkinu er lokið. Ef innleiðingin hefur ekki gengið nógu vel á að laga það sem betur má fara og ljúka verkefninu með sóma, ekki veikja það á miðri leið.


Og hér verður núverandi ríkisstjórn líka að horfast í augu við eigin ábyrgð. Hún hefur nú farið með málaflokkinn í hátt í tvö ár. Það er of einfalt að rekja stöðuna alla til fyrri ríkisstjórnar þegar núverandi stjórnvöld hafa haft bæði tíma og tækifæri til að bæta úr því sem þau telja hafa farið úrskeiðis.


Þörf barnanna hverfur ekki þótt framlag ríkisins hverfi


Ef ríkið stígur til hliðar færist kostnaðurinn einfaldlega yfir á sveitarfélögin, sem þurfa þá annaðhvort að finna fjármunina annars staðar í rekstrinum, draga úr annarri þjónustu eða fækka starfsfólki. Það er niðurskurður, sama hvaða nafni hann er nefndur.


Sveitarfélögin eru ekki komin á þann stað að geta sagt að ávinningurinn af lagasetningunni sé meiri en kostnaðurinn og á meðan það er þarf að taka samtal um kostnaðarskiptinguna.


Barn sem fær rétta hjálp snemma er síður líklegt til að þurfa mun umfangsmeiri og dýrari úrræði síðar. Ef við veikjum fyrsta stig þjónustunnar er hætt við að fleiri börn endi síðar á biðlistum eftir sérhæfðu úrræðunum sem við erum öll sammála um að þurfi að efla.


Við þurfum hvort tveggja


Auðvitað á að efla sérhæfð úrræði fyrir börn sem þurfa á þeim að halda. Um það ætti enginn að deila.


Við þurfum hvort tveggja: öflug úrræði fyrir börnin sem þurfa hjálp núna og snemmtækan stuðning fyrir þau sem enn er hægt að grípa fyrr. Það var einmitt kjarni Farsældarlaganna.


Sveitarfélögin vilja almennt halda verkefninu áfram. Þau hafa kallað eftir því að fá að klára innleiðinguna og að ríkið standi áfram við sinn hlut meðan þeirri vinnu er ekki lokið.


Spurningin til ríkisstjórnarinnar er: Ætlið þið að klára farsældarverkefnið með sveitarfélögunum eða hafið þið ákveðið að skilja þau eftir með reikninginn?


Miðað við fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir er því miður ekki betur að sjá en stjórnvöld hafi valið síðari kostinn.


Sveitarstjórnarfólk Framsóknar:


Alexander Árnason
Anton Guðmundsson
Árni Rúnar Árnason
Ásrún Helga Kristinsdóttir
Birgir Jónsson
Bjarki Oddsson
Bylgja Steingrímsdóttir
Daði Geir Samúelsson
Díana Hilmarsdóttir
Einar Freyr Elínarson
Einar Þorsteinsson
Eydís Inga Sigurjónsdóttir
Eysteinn Heiðar Kristjánsson
Gunnar Már Gunnarsson
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
Helga Rakel Arnarsdóttir
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir
Jónína Brynjólfsdóttir
Liv Åse Skarstad
Magnea Gná Jóhannsdóttir
Matthías Bjarnason
Monika Margrét Stefánsdóttir
Nína Axelsdóttir
Sigurður Líndal Þórisson
Sigvaldi Gunnlaugsson
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir
Sunna Hlín Jóhannesdóttir
Valdimar Víðisson
Walter Fannar Kristjánsson
Þórey Birna Jónsdóttir


Greinin birtist fyrst á Vísi 24. október 2026

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress