Hroki og hleypidómar
Branches

Í viðtali á Vísi hinn 30. september 2026 segir fjármálaráðherra að lausnin á verðbólgunni verði „pínu sársaukafull“ og að ef eitthvert ríki eigi að geta þolað slíkan sársauka sé það Ísland.
Það er ástæða til að staldra við þessi orð. Heimili landsins eru ekki stærð í hagfræðilíkani. Heimilin samanstanda af venjulegu fólki sem greiðir húsnæðislán, mat, hita, rafmagn og sífellt hærri opinber gjöld. Þegar vextir og verðbólga hafa árum saman þrengt að ráðstöfunartekjum fjölskyldna er hæpið að tala um að þær eigi einfaldlega að „þola“ meiri sársauka.
Ráðherrann segir jafnframt að ríkisstjórnin hafi sýnt mikinn aga í ríkisfjármálum. Tölurnar gefa þó tilefni til annarrar umræðu. Í fjárlögum ársins 2026 var gert ráð fyrir 28,1 milljarðs króna halla. Endurmetnar horfur gera nú ráð fyrir 67,5 milljarða halla, eða 1,3% af VLF. Afkoman hefur því versnað um tæpa 40 milljarða frá samþykktum fjárlögum!
Þessa verri stöðu má að hluta rekja til hærri vaxtagjalda. En vandinn er ekki aðeins vextirnir. Gjöld ríkissjóðs stefna einnig í að verða 26,6 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir, meðal annars vegna meiri útgjalda Sjúkratrygginga Íslands og tilfærslukerfa.
Þetta samræmist illa þeirri mynd að hér hafi ríkt sérstaklega mikill agi hjá ráðherranum.
Það vekur sérstaka athygli að á sama tíma og kallað er eftir verðstöðugleika gerir fjárlagafrumvarpið ráð fyrir 5,2% hækkun fjölmargra krónutölugjalda. Kílómetragjaldið á jafnframt að hækka um 15,9%. Slíkar ákvarðanir hafa áhrif á kostnað heimila og fyrirtækja og verða því að vera hluti af umræðunni um hvernig ná eigi verðbólgunni niður í 2,5% markmið Seðlabankans.
Íslensk heimili hafa þegar tekið á sig miklar byrðar vegna verðbólgu og vaxta. Verkefni hagstjórnarinnar á ekki að vera að útskýra hversu mikinn sársauka heimilin geti þolað. Verkefnið er að draga úr honum, ná stjórn á ríkisfjármálunum og skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og vöxtum. Við í Framsókn munum kynna tillögur sem miða að því að ná verðbólgu og vöxtum niður, en jafnframt verja betur stöðu heimila og atvinnulífs.
Ég hugsaði til Mr. Darcy í Hroka og hleypidómum eftir Jane Austen þegar ég hlustaði á viðtalið við fjármálaráðherra. Darcy er í upphafi sannfærður um eigið ágæti og sér heiminn frá sínum eigin sjónarhóli. En styrkur sögunnar felst einmitt í því að hann endurskoðar sjálfan sig, hlustar og sýnir auðmýkt.
Kannski ætti hagstjórnin að læra af Mr. Darcy? Þegar tölurnar þróast verr en áætlað var er ekki nóg að lýsa yfir miklum aga og segja öðrum að þola sársaukann. Þá þarf að horfast í augu við staðreyndir, endurmeta eigin ákvarðanir og breyta um kúrs þegar þess gerist þörf. Jane Austen vissi nefnilega að hroki og hleypidómar geta byrgt okkur sýn.
Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.
Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 1. október 2026



