Í góðu sambandi við Hafnfirðinga

Vorið er á næsta leiti og með aukinni birtu færist ákveðin léttleiki og bjartsýni yfir samfélagið. Það er alltaf yndislegur tími þegar daginn tekur að lengja, umhverfið lifnar við og fólk horfir fram á veginn með endurnýjuðum krafti. Á slíkum tímamótum er gott að staldra við og hugleiða. Ég hef velt fyrir mér hvað það er sem skiptir miklu máli í starfi bæjarstjóra og í þróun samfélagsins okkar.

Að hlusta á það sem skiptir máli

Ég hef lagt ríka áherslu á það í mínu starfi að hitta fólk og hlusta vel á það sem skiptir Hafnfirðinga máli. Ég hef einlægan áhuga á fólki og tel mikilvægt að vinna með íbúum, óháð flokkslínum eða skoðunum. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar er bæjarstjóri allra Hafnfirðinga. Þess vegna legg ég mikla áherslu á að vera sýnilegur, aðgengilegur og í beinu sambandi við íbúa.

Ég er með opna samtalstíma að jafnaði tvisvar í mánuði og þeir hafa verið vel sóttir. Einnig gefst fólki kostur á að bóka samtal í ráðhúsinu einu sinni í viku. Þá legg ég mig fram um að sækja viðburði og fundi í bænum og gef mér jafnframt tíma til að eiga óformleg samtöl við fólk í daglegu lífi, hvort sem það er á mannamótum, í búðarferðum, í heita pottinum eða á förnum vegi. Þetta skiptir máli vegna þess að í þessum samtölum kemur skýrt fram hvað íbúum er efst í huga en það er að nærþjónustan sé traust, umhverfið snyrtilegt og öryggi íbúanna ávallt í fyrirrúmi.

Samstillt átak skilar árangri

Það er ánægjulegt að sjá að Hafnfirðingar eru almennt ánægðir með bæinn sinn. Þjónustukönnun Gallups bendir til þess. Jafnframt sýna mælingar að starfsánægja þeirra sem starfa hjá bænum hefur aukist og ánægja starfsfólks með stjórnun bæjarins fer vaxandi. Það er afar jákvætt og staðfesting á því að samstillt átak skilar árangri. Góður árangur næst þegar fólk vinnur saman af ábyrgð, metnaði og gagnkvæmri virðingu.

Við þurfum að halda áfram á þeirri vegferð. Það er mikilvægt að bæjarstjórinn eigi í beinu samtali við íbúa, hlusti af athygli og heyri raunverulega hvað Hafnfirðingar hafa að segja og bregðist við því sem brennur á fólki.

Ég óska öllum Hafnfirðingum gleðilegrar páskahátíðar.

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri.

Greinin birtist fyrst á fjardarfrettir.is 31. mars 2026