Íþróttir eru samofnar góðu samfélagi

Branches


Skipulagt íþróttastarf gegnir mikilvægu og fjölþættu hlutverki í samfélaginu okkar, en íþróttaiðkun er algengasta tómstund barna og ungmenna í Fjarðabyggð. Forvarnargildi íþrótta er ótvírætt en rannsóknir hafa sýnt að börn og ungmenni sem taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi eru líklegri til þess að nota síður tóbak, áfengi eða önnur vímuefni.


Jafnframt líður þeim betur andlega, líkamlega og félagslega. Íþróttir eru einnig mikilvægar fyrir þroska og félagslegan styrk einstaklinga. 

Einstaklingar læra að vinna í teymi, vinna að markmiðum sínum og liðsins, takast á við sigra og töp og sýna virðingu og tillitssemi. Íþróttaiðkun og hreyfing er ekki síður mikilvæg fyrir eldri kynslóðirnar og við í Framsókn ætlum að auka vægi íþrótta í okkar samfélagi - fyrir unga jafnt sem aldna.

Aukin áhersla á jöfn tækifæri

Við ætlum að leggja enn meiri áherslu á jöfn tækifæri barna og ungmenna til þátttöku í íþróttum og tómstundum með því að auðvelda aðgengi með bættum samgöngum á milli fjarða.

Við ætlum að koma á fót ferðasjóði, til að bæta jafnt aðgengi barna og ungmenna að keppnum og mótum utan sveitarfélagsins. Ferðakostnaður foreldra er íþyngjandi, sérstaklega þegar börn eru í mörgum íþróttagreinum. Með nýjum ferðasjóði viljum við koma til móts við fjölskyldur vegna hækkandi kostnaðar, tengdum íþróttum, ásamt því að þrýsta á ríkisvaldið að koma betur að málefnum ferðakostnaðar.

Byggjum á sterkum grunni

Í allri Fjarðabyggð er öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Við þurfum að efla íþróttastarfið enn betur með því að styðja betur við innviðina og grasrótina.

Mörg íþróttamannvirki í Fjarðabyggð eru orðin gömul og í misgóðu ástandi. Við þurfum að fara kerfisbundið í endurbætur á þessum innviðum svo íþróttaiðkunin geti haldið áfram að blómstra og þannig til dæmis virkjað fleiri einstaklinga til þess að stunda íþróttir.

Á komandi kjörtímabili mun Framsókn einnig leggja áherslu á aukna samvinnu milli okkar góðu skóla og íþróttafélaga með það að markmiði að auka samþættingu milli náms og íþróttastarfs til dæmis með auknu samtali við stunda- og æfingatöflugerð svo þær passi betur saman.

Mikilvægt er að kynna íþróttastarf vel fyrir börnum, koma inn í grunnskóla með kynningu og vekja áhuga á þeim greinum sem eru í boði - en af nógu er að taka. 

Margt gott hefur áunnist í málefnum íþrótta í Fjarðabyggð á undanförnum árum. Við í Framsókn erum staðráðin í að halda áfram á sömu braut og gera öflugt íþróttasamfélag enn betra - enda til mikils að vinna.

Öflugt íþróttastarf byggist á sterkum grunni.

Mætum á kjörstað 16. maí - og setjum X við B

Helga Rakel Arnardóttir 3. sæti og Sara Rut Mellado Vilbergsdóttir 16. sæti á lista Framsóknar í Fjarðabyggð.


Greinin á austurfrett.is