Jafnvel launað starfsnám?

News

„Virðulegi forseti. Síðustu daga hafa komið fram upplýsingar í fjölmiðlum sem segja okkur að í kennaranámi eru nú allt of fáir einstaklingar til þess að viðhalda kennarastéttinni. Þá hafa líka komið fram upplýsingar um að aðeins um helmingur þeirra sem eru með kennsluréttindi starfi í raun við kennslu. Í dag var sú staða sérstaklega rædd á opnum fundi í Háskóla Íslands. Það liggur fyrir að það þarf fjölþætta lausn til þess að vinna gegn þeim vanda sem við blasir, það þarf samtal háskólasamfélagsins, kennarafélaga, ríkisins og sveitarfélaga. Í því samtali þarf að fara yfir inntak námsins, starfsvettvang og kjör.

Varðandi inntak námsins tel ég mjög mikilvægt að ræða hvort nauðsynlegt sé að lokaverkefni í kennaranámi til starfsréttinda séu akademísk, hvort allir þurfi rannsóknarmenntun. Ætti meistaranámið eða meiri hluti þess frekar að vera starfsnám úti í skólunum, jafnvel launað starfsnám? Gætu betri tengingar við skólana og það að allir verðandi kennarar færu í gegnum heilt skólaár í sínu námi tryggt betri tengsl og áhuga á skólastarfinu? Þá tel ég að sú kerfisbreyting sem lögð er til í fyrirliggjandi frumvarpi um Lánasjóð íslenskra námsmanna skapi tækifæri til að þróa hvata til að fjölga nemendum í greinum eins og kennaranámi fyrir öll skólastig. Þessir hvatar gætu annars vegar komið í gegnum styrkjakerfið eða skattalega hvata, eins og lagt er til í breytingartillögum meiri hlutans að skoðað verði sérstaklega.

Varðandi starfsumhverfið vill umræðan um starfsumhverfi í skólum oft verða misvísandi og hana þarf að dýpka í nánustu framtíð.“

Líneik Anna Sævarsdóttir í störfum þingsins 4. október 2016.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress