Jónína Brynjólfsdóttir leiðir lista Framsóknar í Múlaþingi

Framboðslisti Framsóknar í Múlaþingi var samþykktur samhljóða á félagsfundi Framsóknarfélags Múlaþings fyrr í dag.

Jónína Brynjólfsdóttir, safnstjóri og forseti sveitarstjórnar, leiðir listann áfram. Í öðru sæti er Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi, og í þriðja sæti Þórey Birna Jónsdóttir, sauðfjárbóndi. Þar á eftir koma Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi, og Guðmundur Bj. Hafþórsson, eldvarnaeftirlitsmaður. Listann skipa fjölbreyttur hópur fólks með reynslu víða að úr atvinnulífi og félagsmálum af ýmsu tagi.

„Við bjóðum fram lið sem sameinar mikla reynslu en einnig nýtt blóð og nýja sýn á málefnin. Þetta er listi fólks sem þekkir sveitarfélagið, lifir og starfar í samfélaginu og vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp sterkt og samheldið Múlaþing,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti listans.

Framsókn leggur áherslu á samvinnu og trausta og ábyrga stjórn sveitarfélagsins. Einnig kröftuga og málefnalega hagsmunagæslu fyrir Múlaþing gagnvart ríkisvaldinu. Sérstök áhersla er lögð á málefni barna og ungmenna, stuðning við fjölskyldur, sterkt íþrótta- og menningarlíf og að tryggja að rödd allra byggðakjarna heyrist við ákvarðanatöku.

Framsókn í Múlaþingi hvetur íbúa til að kynna sér áherslur framboðsins á næstu vikum. „Við viljum að sem flestir íbúar láti sig málefni samfélagsins varða, taki virkan þátt í málefnalegri umræðu fyrir komandi kosningar og umfram allt annað að fólk mæti á kjörstað til að hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins næstu fjögur árin,“ segir Jónína.

Listann skipa:

Nafn Starfsheiti

  1. Jónína Brynjólfsdóttir - Safnstjóri og forseti sveitarstjórnar

  2. Eiður Ragnarsson - Ferðaþjónustubóndi

  3. Þórey Birna Jónsdóttir - Sauðfjárbóndi

  4. Björg Eyþórsdóttir - Hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi

  5. Guðmundur Bj. Hafþórsson - Eldvarnareftilitsmaður

  6. Brynjar Pálmi Ásgeirsson - Menntaskólanemi

  7. Eygló Björg Jóhannsdóttir - Viðskiptalögfræðingur og formaður Framsóknarfélags Múlaþings

  8. Guðgeir Einarsson - Lögreglumaður

  9. Erla Gunnlaugsdóttir - Starfsmaður svæðisstöðva íþróttahéraða

  10. Kári Snær Valtingojer - Rafiðnfræðingur

  11. Lilja Sigurðardóttir - Hótelstjóri, skógarbóndi og smáframleiðandi

  12. Þorgeir Arason - Sóknarprestur

  13. Íris Randversdóttir - Eldri frú

  14. Jóhann Guttormur Gunnarsson - Smábóndi

  15. Jelena Marinković - Ensku kennari og snyrtifræðingur

  16. Þorsteinn Kristjánsson - Eldri borgari og fv. Bóndi

  17. Einar Tómas Björnsson - Leiðtogi hjá Alcoa

  18. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir - Ritari og búfræðingur

  19. Alda Ósk Harðardóttir - Snyrtifræðimeistari

  20. Vilhjálmur Jónsson - Bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi

  21. Vigdís Sveinbjörnsdóttir - Eldri borgari, fv. kennari og bóndi

  22. Þorvaldur Hjarðar - Skógarbóndi