Kynning á frambjóðanda: Guðbjörg Ýr Ingólfsdóttir

The people

Guðbjörg Ýr Ingólfsdóttir skipar 8. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Guðbjörg er með sterkar rætur í bæjarfélaginu og þekkir samfélagið sitt inn og út. Við erum mjög lánsöm að hafa Guðbjörgu með okkur í þessu verkefni.

"Guðbjörg Ýr heiti ég og er Hvergerðingur í húð og hár enda fædd og uppalin hér. Ég hef verið búsett hér meira og minna alla mína tíð fyrir utan nokkur námsár í Reykjavík og eina sumardvöl í Danmörku. Ég er gift Kristni Fannari og saman eigum við þrjú dásamleg börn sem eru 10, 13 og 16 ára. Við fluttum hingað árið 2011 og höfum búið okkur til yndislegt líf hér saman síðastliðin 15 ár. Hér hafa börnin okkar, líkt og ég, alist upp og segja má því að Hveragerði sé kjarninn okkar.

Fljótlega eftir að við fluttumst hingað fór ég að vinna á leikskóla, fyrst á Undralandi, svo á Óskalandi og vann þar í u.þ.b. 7 ár. Árið 2018 ákvað ég að skrá mig í Háskóla Íslands og hóf nám þar um haustið. Árið 2023 útskrifaðist ég með mastersgráðu í heilsueflingu og heimilisfræði og starfa í dag sem heimilisfræðikennari við Grunnskólann í Hveragerði og uni mér afar vel í starfi mínu þar.

Í Hveragerði er afar gott að alast upp, hér er líka gott að ala upp börnin sín og hér trúi ég að sé gott að eldast. Hveragerði er dásamlegt og samheldið samfélag og mikilvægt er að halda áfram að hlúa að því og efla það enn meira. Ég er afar stolt og þakklát fyrir það tækifæri að sitja í 8. sæti á lista Framsóknar ásamt öllu því frábæra fólki sem situr þar með mér. Ég mun leggja allt mitt af mörkum í að halda áfram að gera gott samfélag enn betra."