Kynning á frambjóðanda: Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

The people

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi, skipar heiðurssæti á lista Framsóknar í Hveragerði fyrir komandi kosningar. Reynsla hennar er ómetanleg og við erum þakklát fyrir að geta áfram leitað í hana með þau verkefni sem framundan eru.

"Ég heiti Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, er 47 ára og skipa stolt heiðurssæti lista Framsóknar í Hveragerði. Ég starfa sem framkvæmdastjóri Lágafellssóknar og hef einnig umsjón með kirkjugörðum sóknarinnar. Ég er trúlofuð Ara Guðmundssyni, verkfræðingi og útibússtjóra Verkís á Suðurlandi, samtals eigum við 6 börn, 3 tengdabörn og eitt barnabarn, mikið ríkidæmi.
Ég hef búið í Hveragerði frá árinu 2007, hér líður mér ákaflega vel enda er bærinn með eindæmum fallegur. Náttúran allt í kring gefur mér bæði andlega og líkamlega næringu enda besti staður til göngutúra og sundlaugarferða. Drengirnir mínir þrír hafa alist hér upp, gengið í grunnskólann og verið virkir í íþróttum. Það er dýrmætt samfélag sem skapast við uppeldi barna og það upplifi ég svo sterkt í Hveragerði.
Í vor hef ég setið í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar í samtals 10 ár. Þessi 10 ár hafa gefið mér margt og vonandi hefur mér tekist að leggja mitt af mörkum fyrir fallega bæjarfélagið okkar. Ég hef öðlast dýrmæta reynslu bæði sem bæjarfulltrúi í minni- og meirihluta og það sem ég sé að er mikilvægt fyrir hagsmuni bæjarfélagsins er samtal og samvinna allra aðila."