Kynning á frambjóðanda: Kristín Anna Oddsdóttir
The people

Kynning á frambjóðanda - 2. sæti
Ég heiti Kristín Anna og er 37 ára gömul.
Ég er fædd og uppalin í Stykkishólmi en flutti með fjölskyldunni minni til Hólmavíkur árið 2017. Hér höfum við fundið okkar stað og unað okkur vel. Samfélagið, fallega náttúran og þeir fjölbreyttu möguleikar sem svæðið býður upp á til útivistar og lífsgæða heilluðu mig strax.
Ég starfa sem umsjónarkennari á unglingastigi, og finnst það afar gefandi starf. Í starfi mínu fæ ég að vinna náið með ungmennum á mikilvægum tíma í lífi þeirra og fylgja þeim á leið til aukins þroska og sjálfstrausts. Það er dýrmætt að sjá nemendur finna sína styrkleika og trúa á eigin getu.
Ég er í námi í kennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri og mun ég útskrifast þaðan í sumar. Ég er einnig menntuð sem leikskólaliði.
Ég er gift honum Andra Hrafni og eigum við saman þrjú dásamleg börn. Fjölskyldulífið er stór og mikilvægur hluti af mínu daglega lífi og skiptir mig gríðarlega miklu máli.
Frítímanum eyði ég helst með fjölskyldunni minni. Ég hef einnig gaman af eldamennsku og bakstri, útivist, hannyrðum og tónlist.
Ég brenn fyrir öflugu skólastarfi og menntun barna okkar, enda er sterkt skólasamfélag sjálf undirstaðan að góðu samfélagi. Tryggja þarf að öll börn fái þann stuðning, það öryggi og þau tækifæri sem þau þurfa til að þroskast og dafna. Með því að fjárfesta í menntun tryggjum við að hver og einn einstaklingur fái tækifæri til að blómstra og leggja sitt af mörkum til framtíðar.
Helstu áherslur mínar í sveitarstjórn:
* Að styðja við öflugt skólastarf og góð tækifæri fyrir börn og ungmenni
* Að efla fjölskylduvænt og heilsueflandi samfélag
* Að skapa samfélag þar sem allir íbúar hafa rödd og geta tekið þátt
* Að hlúa áfram að náttúrunni og þeim miklu möguleikum sem svæðið býður upp á til útivistar og lífsgæða
Mig langar að leggja mitt af mörkum til að gera gott samfélag enn betra, fyrir börnin okkar, fjölskyldurnar og alla íbúa. Ég tel mikilvægt að hlusta á íbúa og vinna saman að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar.
Candidate Introduction - 2nd Place
My name is Kristín Anna and I am 37 years old.
I was born and raised in Stykkishólmur but moved with my family to Hólmavík in 2017. We have found our place here and have enjoyed it very much. The community, the beautiful nature and the diverse opportunities that the area offers for outdoor activities and quality of life fascinated me immediately.
I work as a supervisor teacher at the junior high school level, and I find it a very rewarding job. In my job, I get to work closely with young people at an important time in their lives and guide them on their path to increased development and self-confidence. It is valuable to see students find their strengths and believe in their own abilities.
I am studying teacher education at the University of Akureyri and will graduate from there this summer. I am also educated as a preschool teacher.
I am married to Andri Hrafnur and together we have three wonderful children. Family life is a big and important part of my daily life and is extremely important to me.
I spend most of my free time with my family. I also enjoy cooking and baking, the outdoors, crafts and music.
I am passionate about strong schools and the education of our children, as a strong school community is the foundation of a good society. We must ensure that all children receive the support, security and opportunities they need to develop and thrive. By investing in education, we ensure that each and every individual has the opportunity to flourish and contribute to the future.
My main focuses in the local government:
* Supporting strong schools and good opportunities for children and young people
* Promoting a family-friendly and health-promoting society
* Creating a society where all residents have a voice and can participate
* Continuing to nurture nature and the great opportunities that the area offers for outdoor activities and quality of life
I want to do my part to make a good society even better, for our children, families and all residents. I believe it is important to listen to residents and work together to continue building our society


