Kynning á frambjóðanda: Örlygur Atli Guðmundsson

The people

Örlygur Atli Guðmundsson skipar 11. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði í komandi kosningum. Hann kemur með víðtæka reynslu úr kennslu, tónlist og samfélagsstarfi. Það er okkur sönn ánægja að kynna Ölla til leiks!

"Ég heiti Örlygur Atli Guðmundsson og skipa 11. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði.

Ég er fæddur á Hvammstanga, ættaður úr Húnavatnssýslu og Vestfjörðum, en ólst upp í Mosfellsbæ. Á lífsleiðinni hef ég einnig búið og starfað erlendis, meðal annars í Noregi, Danmörku og Hollandi. Síðustu 21 ár hef ég búið í Hveragerði með fjölskyldunni minni, þar sem okkur líður afar vel – enda einstakur bær með fallegt umhverfi og gott mannlíf. Ég er kvæntur, á tvö uppkomin börn og eitt barnabarn.

Ég er menntaður kennari og tónlistarmaður og hef starfað við kennslu og tónlist alla mína starfsævi. Ég hef kennt á grunn- og framhaldsskólastigi, starfað sem organisti og stjórnað kórum í fjölda ára, auk þess að taka þátt í fjölbreyttum menningarverkefnum sem flytjandi og skipuleggjandi. Þá hef ég einnig starfað sem leiðsögumaður bæði hér heima og erlendis.

Í dag starfa ég sem tónlistarkennari í Reykjavík, stjórna Karlakór Hveragerðis og Álafosskórnum í Mosfellsbæ og sinni leiðsögn og fararstjórn meðfram því.

Í mínum huga er menning og menntun hornsteinn samfélagsins og þar myndi ég vilja beita mér, sem og í málefnum eldri borgara

Ég vona að reynslan mín og bakgrunnur geti nýst fyrir bæjarfélagið okkar."