Kynning á frambjóðanda: Örn Sigurðarson
The people

7. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði skipar Örn Sigurðarson. Við erum mjög þakklát fyrir að hafa hann á okkar bandi og hans dýrmætu innsýn í byggingariðnaðinn!
“Ég heiti Örn Sigurðarson, ég er 36 ára húsasmíðameistari, eigandi solpallur.is og hef starfað við byggingariðnað um árabil.
Ég er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði en flutti til Hveragerðis árið 2012 til að spila körfubolta með Hamri. Þar kynntist ég konunni minni, Sigurlinn Kjartansdóttur frá Hjallanesi úr Landsveit. Með körfuboltanum vann ég í sundlauginni í Laugarskarði og í íþróttahúsinu sem gaf mér góða innsýn inn í samfélagið og daglegt líf bæjarbúa. Við Sigurlinn bjuggum á Selfossi í nokkur ár eða þar til við tókum þá góðu ákvörðun að verða okkur út um lóð í Hveragerði þar sem við byggðum okkur hús. Saman höfum við skapað okkur fallegt heimili og eigum saman tvö börn, Rós 7 ára og Sigurð Erni 4 ára.
Eftir að ég flutti aftur til Hveragerðis fór ég í nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem ég lauk sveinsprófi í húsasmíði. Í framhaldinu lauk ég meistaraprófi í húsasmíði frá Tækniskólanum.
Ég hef mikinn áhuga á uppbyggingu samfélagsins í Hveragerði og vil leggja mitt af mörkum til að gera góðan bæ enn betri. Gott skipulag og góð nýting byggingarlands er eitthvað sem skiptir máli og þar þarf að vanda til verka. Það skiptir máli að styðja vel við barnafjölskyldur, eldri borgara, aðra íbúa og fyrirtæki í bæjarfélaginu.
Hópurinn sem skipar lista Framsóknar í Hveragerði í kosningunum í vor er frábær. Þar er öflugt og samhent fólk sem er tilbúið til þess að leggja hart að sér fyrir samfélagið okkar. Áhersla er lögð á að sveitarfélagið veiti góða og ábyrga þjónustu fyrir íbúa þess, fari vel með fjármuni og vinni markvisst að því að efla samfélagið okkar til hagsbóta fyrir alla íbúa Hveragerðisbæjar.”


