Kynning á frambjóðanda: Reynir Arnarson
The people

Ég heiti Reynir Arnarson og skipa 13. sæti lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra. Ég er kvæntur Svandísi Guðnýju Bogadóttur og eigum við þrjá syni og barnabörnin eru alls ellefu.
Ég fæddist á Vopnafirði 1956, en fjölskyldan fluttist til Hafnar þegar ég var þriggja ára. Skólagangan var hefðbundin hér á Höfn, síðan vetur á Reykholti auk náms til vélstjóra. Ég var í sveit í Suðursveit, Lóni og Mýrum fram á unglingsár en þaðan lá leiðin á sjóinn en það var draumur margra ungra manna á þeim tíma og er jafnvel enn. Sjómennskan varði í 30 ár en að henni lokinni höfum við Svandís aðallega starfað við ferðaþjónustu og ýmislegt tengt henni þar til nú nýverið að við höfum að mestu dregið okkur í hlé frá daglegu amstri á þeim vettvangi.

Við sveitarstjórnarkosningarnar árið 2002 var ég á lista Framsóknar hér og var fulltrúi í sveitarstjórn í 12 ár eða til ársins 2014, þar af 8 ár forseti bæjarstjórnar eða formaður bæjarráðs, einnig átti ég sæti í hafnarstjórn frá árinu 1988 til 2022.
,,Að fortíð skal hyggja þá framtíð skal byggja” tel ég nauðsynlegt svo við lærum og gerum síður mistök við ákvarðanir til framtíðar.
Reynir Arnarson 13. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum á Hornafirði


