Kynning á frambjóðenda: Lena Hrönn Marteinsdóttir
The people

Ég er Lena Hrönn Marteinsdóttir og skipa 9. sæti B-lista Framsóknar og stuðningsmanna. Ég er fædd og uppalin í Ártúni í Nesjum en fluttist á Höfn að loknu námi. Þar bý ég enn með manni mínum Jóni Birni Jónssyni og tveimur sonum, Ívari Erni og Adam Hrafni.

Ég útskrifaðist sem stúdent frá FAS. Ég er með MA-próf í félagsráðgjöf til starfsréttinda og hef starfað í Grunnskóla Hornafjarðar óslitið frá því að ég kom heim úr námi 2011. Þar hef ég sinnt námsráðgjöf, kennslu og lengi haldið utan um innra mat skólans. Þá hef ég einnig tekið mikinn þátt í rekstri gistingar og veitingastaðar í félagi við fjölskylduna mína. Ég kenni líka Hornfirðingum crossfit fyrir birtingu alla virka daga. Að auki höldum við um 150 fjár á æskuheimilinu Ártúni.

Í frístundum stunda ég crossfit af kappi, ég sinni félagsstörfum, var um nokkurt skeið gjaldkeri í Hestamannafélaginu Hornfirðingi en er nú ritari í yngriflokkaráði knattspyrnudeildar Sindra.

Líf mitt og okkar fjölskyldunnar hverfist að mörgu leyti um íþróttir þar sem drengirnir okkar stunda bæði knattspyrnu og körfubolta og höfum við foreldrarnir mikla ánægju af því að fylgja þeim í það sem því fylgir. Nú og ef ekki er verið að stunda íþróttirnar þá er verið að horfa á þær. Við fjölskyldan erum einnig fastagestir í sundlaug Hornafjarðar, en þar þykir okkur ákaflega gott að ljúka annasömum dögum, láta líða úr okkur og ræða samfélagsmálin.
Ég hef ríkan áhuga á að vinna að eflingu lýðheilsu í sveitarfélaginu, þar sem ég tel forvarnir vera einn mikilvægasta þáttinn í velferð barna og unglinga. Að mínu mati felst ein besta forvörnin í því að tryggja aðgengi að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og styðja við góða samveru fjölskyldna. Slíkt umhverfi stuðlar að bættri líkamlegri og andlegri heilsu og leggur grunn að heilbrigðum lífsvenjum til framtíðar.
Hafandi starfað innan grunnskólans frá útskrift eru mennta- og fræðslumál mér ofarlega í huga. Framhaldsskólinn okkar er mér hugleikinn. Hann hefur ekki staðið traustum fótum síðustu misseri og er til mikils að vinna að styðja við hann með þeim leiðum sem eru færar. Það yrði gríðarleg skerðing fyrir samfélagið ef sveitarfélagið hefði ekki framhaldsskóla. Starfandi innan elstu deildar grunnskólans hef ég lagt mig fram við að tala upp framhaldsskólann okkar og hans styrkleika og mun halda því áfram.

Jafnframt hef ég áhuga á velferðarmálum og vil beita mér fyrir öflugu og aðgengilegu stuðningskerfi fyrir íbúa sveitarfélagsins. Sem menntaður félagsráðgjafi hef ég öðlast dýrmæta innsýn í aðstæður og þarfir einstaklinga og fjölskyldna og mikilvægi þess að tryggja jöfn tækifæri, öryggi og góða þjónustu.
Ég legg einnig áherslu á uppbyggingu innviða í takt við vaxandi fjölda ferðamanna á svæðinu. Mikilvægt er að sveitarfélagið sé vel í stakk búið til að taka á móti auknu álagi með markvissri skipulagningu, bættri aðstöðu og skýrum lausnum sem þjóna bæði íbúum og gestum.
Að lokum vil ég sjá meiri skilvirkni í stjórnsýslu sveitarfélagsins, þar sem gagnsæi, hraði og fagmennska eru höfð að leiðarljósi. Með einfaldari ferlum og betri nýtingu fjármuna getum við bætt þjónustu og aukið traust íbúa á stjórnsýslunni.

Mér þykir afskaplega vænt um bæinn minn og samfélagið okkar og vil að Hornafjörður sé góður og aðlaðandi staður til að búa á fyrir alla, með ríka áherslu á velferð, lýðheilsu, góða innviði og skilvirka þjónustu.
Lena Hrönn Marteinsdóttir 9. sæti hjá Framsókn og stuðningsmönnum í sveitarfélaginu Hornafirði


