Kynning á frambjóðendum: Herdís Þórðardóttir

The people

Herdís Þórðardóttir skipar 12. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði. Hún er reynslubolti í sveitarstjórnarmálum og það er mikill styrkur í að fá að njóta hennar krafta á komandi kjörtímabili.

"Herdís heiti ég og skipa 12 sætið á lista Framsóknar í Hveragerði og er tæplega 68 ára gömul. Er fædd og uppalin í Hveragerði og hef búið hér mesta hluta ævi minn. Við hjón eigum saman 4 börn, 11 barnabörn og 2 barnabarnabörn.

Ég hef víða komið við á starfsferlinum um ævina, verslunarstörf, fiskvinnsla, bankastörf, verslunareigandi, bæjarfulltrúi, framkvæmdastjóri og innkaupastjóri. Ég hef undanfarin tæp 30 ár starfað innan heilbrigðisþjónustunar fyrst sem framkvæmdastjóri á Heilsugæslu Hveragerðis en við sameiningu heilsugæslanna á Suðurlandi tók ég að mér að vera innkaupastjóri á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. HSU er stærsta heilbrigðisumdæmi á landinu og nær frá Hveragerði til Hafnar í Hornafirði auk Vestmannaeyja, það hefur verið ákaflega gefandi og lærdómsríkt að sinna því starfi og taka þátt í því mikla uppbyggingastarfi sem unnið hefur verið á HSU undanfarna áratugi.

Það eru hrein forréttindi að búa í Hveragerði sagði maðurinn minn þegar hann flutti hingað, ég get svo heilshugar tekið undir þau orð. Að alast hér upp sem barn var draumi líkast, Reykjafjallið, Hamarinn, Reykjadalurinn og Laugaskarð eru útivistarperlur og voru leikvangur okkar krakkann í þorpinu. Það er undur ljúft að vita til þess að 7 áratugum síðar eru þessi sömu svæði til staðar, jafn spennandi, leyndardómsfull, krefjandi og þroskandi leikvellir fyrir börnin í bænum okkar í dag. Að búa á stað þar sem hægt að velja nokkrar fallega gönguleiðir þegar lappað er út af heimilinu eru gæði, bærinn okkar kúrir og umvafnin fjallahring. Að standa við Skífuna á heiðinni og horfa á bæinn minn er með fallegri sjón sem ég sé, gróinn, kyrrðlátur og fagur.

Áhugamál mín eru nokkur, útivist og göngur, ræktun sumarblóma, prjónaskapur og félagslíf. Einnig fórum við hjónin að iðka golf fyrir 7 árum og erum hugfangin af því sporti, höfum ferðast hringinn í kringum landið og spilað á afar mörgum miskrefjandi völlum sem allir eiga það sameiginlegt að vera byggðir upp og starfræktir af metnaðarfullum félagsmönnum. Félagsstarfið í golfklúbbnum hér í Hveragerði gríðarlega öflugt, barna og ungliðstarf, kvennastarf og nýliðamóttaka þar sem nýliðar fá kennslu við inngöngu í klúbbinn allt er þetta til fyrirmyndar.

Nú fer senn að líða að því að ég fari inná síðasta ævikaflann og verði virkur (h)eldir borgari, það er virkilega fallegt að fá að njóta þess að eldast og Hveragerði er slíkt gæða samfélag að það vekur tilhlökkun sá tími sem framundan er, og hlúa að sínu lífi og lífsgæðum.

Þegar ég var beðin um að taka sæti á lista Framsóknar þurfti ég ekkert að hugsa það lengi, ég hef brennandi áhuga á því samfélagi sem ég bý í og tel að ég geti komið sjónarmiðum okkar heldi borgara á framfærin við að gera gæða samfélagið okkar enn betra því við getum alltaf gert betur. Með þéttu samstarfi og samvinnu innan bæjarstjórnar er hægt í sameiningu að styrkja og efla okkar gæða samfélag sem Hveragerði svo sannarlega er. Þátttaka í heilsueflandi íþrótta-og tómstundastarfi efla almennt heilbrigði og hreysti eldri Hvergerðinga að því eigum við að hlúa, efla og hvetja. Félag eldri borgara er með mjög virkt félags-og tómstundalíf og ættu allir að finna þar eitthvað við sitt hæfi auk samverustunda sem bæta heilbrigði hvers einstaklings þar sem honum er mætt þar sem hann er.

Mig langar til að halda áfram að taka þátt í okkar öflug samfélagi og leggja mitt að mörkum til þess, því sagði ég JÁ við sæti á lista Framsóknar næsta kjörtímabil.
Framsókn í Hveragerði hefur á síðasta kjörtímabili staðið vel að aðkallandi uppbyggingu á innviðum, grunnskólanum, leikskólum, íþróttamannvirkjum, atvinnulífinu og hafin er vinna við stækkun fráveitumannvirkja.

Framsókn hefur sýnt og sannað að þeim er treystandi til að standa við gefin kosningaloforð og höfum á kjörtímabilinu getað uppfyllt þau kosningaloforð sem lögð voru fram við síðustu kosningar, með samvinnu og samstarfi er Hveragerði á góðum stað, þetta fallega gæða samfélag."