Kynningarblað á frambjóðendum í Suðvestur

News

Sjö verða í framboði hjá Framsóknarflokknum í Suðvesturkjördæmi í prófkjöri 8. maí 2021. Kosið verður um fimm efstu sætin. Talning atkvæða mun fara fram sunnudaginn 9. maí.

Kosið verður í lokuðu prófkjöri Framsóknar í Suðvesturkjördæmi laugardaginn 8. maí í Bæjarlind 14 - 16, Kópavogi, frá klukkan 10:00- 18:00.

Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar 5.-7. maí frá klukkan 16:00-19:00 í Bæjarlind 14 - 16, Kópavogi.

Kosið er um fimm efstu sætin og kjósandi setur tölustaf fyrir framan nafn þess sem hann vill kjósa, 1 fyrir framan þann sem hann vill í fyrsta sæti, 2 fyrir framan þann sem hann vill í annað sæti og svo framvegis upp í fimm sæti.

Athugið að ekki má merkja við færri eða fleiri frambjóðendur en fimm, annars verður atkvæðið ógilt.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress