Lækkum álögur á íbúa
Branches

Fasteignamat á Hornafirði hefur hækkað umfram launaþróun í landinu. Sem dæmi hefur fasteignamat á einu einbýli á Höfn hækkað úr 43 milljónum árið 2022 í 72 milljónir árið 2026, hækkun upp á 67%. Á sama tíma hefur launavísitala hækkað um 36%.
Þegar fasteignamat hækkar svona mikið hækka gjöldin líka. Þrátt fyrir að álagning fasteignaskatts hafi lækkað úr 0,41% árið 2022 í 0,33% árið 2026 hefur raunálag á heimilin aukist verulega. Á sama tíma hefur álagning fráveitugjalds, sem einnig reiknast af fasteignamati staðið í stað. Niðurstaðan er einföld: íbúar greiða sífellt meira.
Lækkum skatta á heimilin
Eigendur íbúðarhúsnæðis í Sveitarfélaginu Hornafirði greiða nú mun meira í gjöld en fyrir fáum árum og þetta er einfaldlega orðið of mikið.
Til samanburðar er fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði aðeins 0,225% í Vestmannaeyjum og fráveitugjald þar 0,2%. Það er því ljóst að hægt er að gera betur.
Við teljum að sveitarfélagið eigi að standa með íbúum sínum – ekki íþyngja þeim um of með sköttum og gjöldum. Þess vegna viljum við taka skýr skref til lækkunar og munum leggja til við gerð næstu fjárhagsáætlunar að bæði fasteignaskattur og fráveitugjald verði lækkuð niður í 0,28%, að minnsta kosti.
Sveitarsjóður þolir lækkunina
Sveitarfélagið er rekið með góðum afgangi. Lækkun fasteignagjalda mun því ekki setja rekstur þess í uppnám. Þá höfum við einnig fengið staðfest að breytingarnar hafa ekki áhrif á framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Mikil fjárfesting hefur orðið í fráveitu á Höfn, fjárfestingin hefur m.a. verið fjármögnuð af aðalsjóði sveitarfélagsins og í núverandi fjárhagsáætlun er áætlað að lánin verði greidd upp á tiltölulega stuttum tíma. Við teljum þó vera svigrúm til að endurskoða uppgreiðslu lána og haga niðurgreiðslu með hægari hætti, enda er um langtímafjárfestingu að ræða. Ekki er endilega réttlætanlegt að núverandi íbúar beri einir kostnað af fjárfestingu sem nýtist einnig til framtíðar.
Við viljum létta undir með heimilunum í sveitarfélaginu og munum áfram skoða fleiri leiðir til að draga úr álögum. Þannig aukum við einnig samkeppnishæfni sveitarfélagsins við önnur sveitarfélög þegar valið snýst um búsetu en dæmi eru um að háir skattar hrindi frá íbúum sem annars væru til í að setjast hér að.
Hugum að íbúum sveitarfélagsins með hóflegri álagningu án þess að skerða framkvæmdafé þess.
Fyrir hönd frambjóðenda Framsóknar og stuðningsmanna í Sveitarfélaginu Hornafirði
Hjalti Þór Vignisson, 1.sæti
Ingibjörg Sveinsdóttir, 2.sæti



