Listi Framsóknar og óháðra í Strandabyggð samþykktur

Notifications

Framboð Framsóknar og óháðra í Strandabyggð hefur samþykkt lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi.
Myndin sýnir hluta hópsins - á myndina vantar Röfn, Silju, Árnýju og Sigríði.

Listann skipa:
1. sæti – Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, framkvæmdastjóri.
2. sæti – Kristín Anna Oddsdóttir, grunnskólakennari.
3. sæti – Valgeir Örn Kristjánsson, húsasmiður.
4. sæti – Ragnheiður Ingimundardóttir, fyrrum verslunarkona.
5. sæti – Röfn Friðriksdóttir, fótaaðgerðafræðingur.
6. sæti – Silja Dagrún Júlíusdóttir, starfsmaður sundlaugar.
7. sæti – Halldór Jónsson, sjómaður.
8. sæti – Andri Hrafn Ásgeirsson, verkamaður.
9. sæti – Árný Helga Birkisdóttir, nemi.
10. sæti – Sigríður Drífa Þórólfsdóttir, búfræðingur.

Þau bjóða fram öflugan og samstilltan hóp sem leggur áherslu á sátt, samvinnu og raunhæfar lausnir fyrir Strandabyggð. Þau vilja byggja upp barn- og fjölskylduvænt samfélag, efla innviði, menningu, atvinnulíf og þjónustu.

,,Framundan eru mikilvægar ákvarðanir – við viljum taka þær með ábyrgð, aðhaldi í fjármálum en jafnframt með uppbyggingu á sama tíma og í góðu samráði við íbúa.

Við hvetjum alla til að fylgjast með, taka þátt og styðja okkur í komandi kosningabaráttu.

Samvinna og sátt skilar árangri – fyrir Strandir," segir í tilkynningu frá framboðinu