„Metnaður okkar Íslendinga að berjast fyrir sjálfbærni landsins“

News

„Virðulegur forseti. Meiri hluti landsmanna er andvígur því að slakað verði á reglum um innflutning á ferskum matvælum, samkvæmt könnun sem Zenter rannsóknir unnu fyrir Fréttablaðið og fjallað er um í blaðinu í dag og á vef þess. Það kemur ekkert sérstaklega á óvart að andstaðan er meiri á landsbyggðinni en á suðvesturhorninu þar sem návígið við framleiðsluna er meira. Bann við innflutningi á hráu kjöti og ferskum matvælum snýst um sérstöðu Íslands til framtíðar. Framtíðarhagsmunir íslensks samfélags eru undir. Þeir hagsmunir eru miklu stærri en hagsmunir einstakra stétta í nútíðinni,“ sagði Ásgerður K. Gylfadóttir, varaþingmaður, í ræðu í störfum þingsins á Alþingi í vikunni. Ræða Ásgerðar K. Gylfadóttur, varaþingmanns, á Aþingi 5. mars 2019.

„Varðandi viðskiptaþáttinn er íslenskur markaður lítill í alþjóðlegum samanburði og vega því hagsmunir okkar þyngra í heildarsamhenginu. Það ætti að vera metnaður okkar Íslendinga að berjast fyrir sjálfbærni landsins og auknu matvælaöryggi. Það er ekki hræðsluáróður að benda á að heilbrigði búfjárstofna á Íslandi er með því besta sem gerist í heiminum og notkun sýklalyfja í landbúnaði með því minnsta sem þekkist.

Ræktum landið, verndum þá sérstöðu sem við höfum hér í heilbrigði búfjárstofna og leggjum þar inn á loftslagsreikninginn sem framtíðarkynslóðir kalla eftir að við sinnum betur en nú er gert.“

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress