Niðurstöður 38. Flokksþings Framsóknar

Dagana 14.-15. febrúar var 38. Flokksþing Framsóknar haldið á Hilton Nordica Hotel.
Á þingið mættu mörg hundruð félagar í Framsóknarflokknum og áttu góða stund saman. Kjörin var ný forysta, stór málefnapakki samþykktur og mikil gleði var á hátíðarkvöldverðinum og ballinu.
Á fyrri deginum hélt Sigurður Ingi Jóhannsson sína síðustu ræðu sem formaður Framsóknar. Á dagskránni var einnig skýrsla ritara, málefnastarf og almennar umræður.

Samþykktir
Í málefnastarfinu voru 11 málefnahópar. Þátttaka í málefnastarfinu var mikil og þökkum við málefnanefndinni, hópstjórum og hópriturum sérstaklega fyrir sína vinnu. Afgreiðsla mála gekk fljótt fyrir sig og kláraðist öll afgreiðsla fyrir hádegi á sunnudegi. Afgreiddar voru ályktanir málefnahópanna ásamt nýrri jafnréttisáætlun og siðareglum. Einnig var lögð fram tillaga um nýja siðanefnd og nýja varamenn í laganefnd og var sú tillaga samþykkt.
Hér má nálgast þau skjöl sem samþykkt voru á Flokksþinginu:


Kosningar
Á sunnudegi var kosið í embætti formanns, varaformanns og ritara. Á kjörskrá voru 885 einstaklingar. Kosið var um varaformann og ritara á sama tíma eins og heimilt er í lögum Framsóknar, gr 15.4.
Formannskosning:
Í framboði voru Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Ingibjörg Ólöf Isaksen.
Greidd atkvæði voru 607. Auðir og ógildir seðlar voru 1. Gild atkvæði voru 606.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir fékk 352 atkvæði eða 58% og er því réttkjörinn formaður Framsóknarflokksins.
Ingibjörg Ólöf Isaksen fékk 254 atkvæði eða 42%.

Varaformannskosning:
Í framboði var Stefán Vagn Stefánsson.
Greidd atkvæði voru 274. Auðir og ógildir seðlar voru 21. Gild atkvæði voru 253.
Stefán Vagn Stefánsson hlaut 222 atkvæði eða 81% og varð því réttkjörinn varaformaður Framsóknarflokksins.

Ritarakosning:
Í framboði var Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.
Greidd atkvæði voru 275. Auðir og ógildir seðlar voru 5. Gild atkvæði voru 270.
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir hlaut 264 atkvæði eða 96% og er því réttkjörinn ritari Framsóknarflokksins.

Viðurkenningar
Á hátíðarkvöldverði Framsóknar 14. febrúar 2026 voru veittar viðurkenningar.
Bjartsýnisverðlaun
Bjartsýnisverðlaun eru veitt aðilum sem hafa lagt eitthvað jákvætt að mörkum til íslensks samfélags.
Framkvæmdastjórn Framsóknar tók þá ákvörðun að veita flokksmanninum Guðmundi Fylkissyni bjartsýnisverðlaun Framsóknar 2026.

Guðmundur Fylkisson og Sigurður Ingi Jóhannsson
Jafnréttisverðlaun
Jafnréttisnefnd veitir viðurkenningu á flokksþingi þeirri flokksstofnun eða einstaklingum sem skarað hafa fram úr að framgangi jafnréttisáætlunar flokksins. Unnur Þöll Benediktsdóttir, jafnréttisfulltrúi Framsóknar, veitti verðlaunin.
Að þessu sinni var tekin ákvörðun um að veita Dagbjörtu Höskuldsdóttur, formanni SEF, jafnréttisverðlaun Framsóknar.

Dagbjört Höskuldsdóttir og Unnur Þöll Benediktsdóttir
Gullmerki
Ritari Framsóknar skal veita gullmerki Framsóknar einstaklingi sem um árabil hefur unnið framúrskarandi og óeigingjarnt starf með sérstaka áherslu á innra starf flokksins, störf í grasrót og skal viðkomandi hafa sýnt áralangt óyggjandi traust við flokkinn.
Að þessu sinni ákvað landsstjórn að veita tvennum hjónum Gullmerki Framsóknar.
Voru það hjónin:
Ólafía Ingólfsdóttir og Guðmundur Elíasson
Sveinn Bernódusson og Sigríður Káradóttir

Guðfinna Helgadóttir, dóttir Ólafíu, tók á móti verðlaununum fyrir hönd Ólafíu og Guðmundar.

Sveinn Bernódusson og Sigríður Káradóttir



