Nýr meirihlutasamningur undirritaður í Húnaþingi vestra
News

Fulltrúar B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna og D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra undirrituðu 31. maí málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026 til 2030 og staðfestu þar með myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Húnaþings vestra.
Samningurinn byggir á sameiginlegri sýn um ábyrgan rekstur sveitarfélagsins, öfluga grunnþjónustu og markvissa uppbyggingu um allt sveitarfélagið. Jafnframt leggja samstarfsflokkarnir áherslu á gott upplýsingaflæði og víðtækt samráð við minnihluta sveitarstjórnar þannig að sem breiðust sátt náist um mikilvæg mál.
Samkvæmt samningnum mun Sigurður Líndal Þórisson gegna oddvitasæti sveitarstjórnar en Örn Arnarson verður formaður byggðarráðs. Þá verður núverandi sveitarstjóra, Unni Valborgu Hilmarsdóttur, boðið að halda áfram störfum sem sveitarstjóri.
Meirihlutinn leggur áherslu á að ráðast í fjölmörg verkefni sem bæta aðstöðu og þjónustu í sveitarfélaginu. Meðal helstu framkvæmda eru greining á framtíðar rýmisþörfum leikskólans, fegrunarátak á Hvammstanga, vinna við aðalskipulag sveitarfélagsins, rannsókn á möguleikum hitaveitu í Hrútafirði, gangstéttagerð á Laugarbakka og ýmsar umbætur á innviðum sveitarfélagsins, svo sem vinna að byggingu björgunarmiðstöðvar.
Áhersla verður lögð á ráðdeild í rekstri sveitarfélagsins. Gjaldskrár sveitarfélagsins munu standa óbreyttar árið 2027 og fasteignagjöld verða ekki hækkuð frá fyrra ári. Samhliða verður unnið að því að tryggja að fjárfestingar og framkvæmdir sveitarfélagsins fari fram með ábyrgum hætti.
Í atvinnumálum hyggst meirihlutinn standa vörð um landbúnað sem eina af grunnstoðum atvinnulífs í héraðinu um leið og unnið verður að því að laða að ný fyrirtæki, fjölga störfum og efla byggð í sveitarfélaginu.
Í sameiginlegri hagsmunagæslu gagnvart ríkinu verður lögð sérstök áhersla á samgöngu- og innviðamál, heilbrigðisþjónustu, húsnæðismál og önnur verkefni sem skipta íbúa Húnaþings vestra miklu máli. Markmiðið er að tryggja að sveitarfélagið njóti sanngjarns stuðnings og að framgangur mikilvægra verkefna verði tryggður á komandi kjörtímabili.

