Orkan – grunnur að framtíðar atvinnulífi í Ísafjarðarbæ?
Branches

Fyrir um tveimur árum bárust jákvæðar fréttir þegar merki fundust um heitt vatn á Ísafirði sem verður nýtt til húshitunar með varmadælum í Skutulsfirði. Þessi nýting á jarðvarma mun draga verulega úr raforku sem fer í húshitun og þannig skapað meira svigrúm í raforkukerfinu fyrir aðra starfsemi. Þetta er mikilvægt, því orka snýst ekki aðeins um að hita hús og kveikja ljós, hún er líka grunnforsenda atvinnulífs og verðmætasköpunar.
Ísafjarðarbær býr yfir sterkum stoðum þegar kemur að atvinnulífi á Vestfjörðum og þar vegur sjávarútvegur og fiskeldi þungt. Fiskeldi hefur á undanförnum árum orðið ein af mikilvægustu atvinnugreinum svæðisins og skapar fjölda starfa, bæði beint og óbeint. Þar er Ísafjarðarbær í lykilstöðu með hafnir, þjónustu og þekkingu sem tengist greininni. Þróun fiskeldis kallar á sterka innviði fyrir greinina í heild, þar skiptir orkan miklu máli, bæði upp á landtengingar á fóðurprömmum, framleiðslu seiða, en einnig landtengingar í höfnum sem gera þjónustuskipum kleift að nýta rafmagn í stað þess að nota jarðefnaeldsneyti. Samhliða þessu mun eftirspurn eftir raforku aukast almennt á höfnum við orkuskipti smábáta, farþegabáta og skemmtiferðaskipa svo fátt eitt sé nefnt.
Á köldum svæðum, með stöðuga og hreina raforku, geta skapast tækifæri fyrir t.d. gagnavinnslu og minni gagnaver, en slík starfsemi nýtir bæði raforku og náttúrulega kælingu umhverfisins sem getur skapað tækifæri á svæðinu. Með hagkvæmum orkustraumum getum við horft til fjölbreyttrar starfsemi á svæðinu allt frá matvælaframleiðslu til líftækni og annarrar iðnaðarstarfssemi.
En til þess að þessi tækifæri verði að veruleika verðum við að tryggja afhendingaröryggi raforku, það er lykilatriði. Vestfirðir hafa lengi búið við viðkvæmt raforkukerfi og það setur bæði heimilum og atvinnulífi skorður. Ef við ætlum að byggja upp sterkt og fjölbreytt atvinnulíf verðum við að tryggja stöðugt og áreiðanlegt raforkukerfi. Það er því mikilvægt að sveitarfélagið vinni áfram náið með orkufyrirtækjum og stjórnvöldum að því að styrkja raforkukerfið á Vestfjörðum, bæði með öflugri flutningskerfum og aukinni staðbundinni orkuframleiðslu.
Framtíð Ísafjarðarbæjar ræðst að miklu leyti af því hvernig við nýtum þau tækifæri sem liggja fyrir. Með því að þróa orkumál áfram, styðja við atvinnulíf og byggja upp innviði sem styðja við fiskeldi, sjávarútveg og nýsköpun getum við skapað fjölbreyttari störf og aukið verðmætasköpun í samfélaginu.
Orkan er ekki aðeins auðlind – hún er einn af lykilþáttunum í framtíð Ísafjarðarbæjar.
Tinna Rún Snorradóttir
skipar 4. sæti á lista Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum í Ísafjarðarbæ.


