Óvissa og erfiðleikar hjá nautgripabændum vegna stefnuleysis Kristjáns Þórs

News

Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, segir óvissu og erfiðleika vera hjá nautgripabændum vegna stefnuleysis Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ekki hefur enn borið á á viðbrögðum stjórnvalda frá því að samráðshópur Kristján Þórs skilaði af sér tillögum í febrúar eða fyrir átta mánuðum. Þetta kom fram í störfum þingsins á Alþingi í dag.

,,Þetta hefur skapað óvissu hjá bændum og frost hefur ríkt á mjólkurkvótamarkaðnum. Þetta hefur valdið erfiðleikum, m.a. við nýliðun. Þeir sem hafa verið í uppbyggingu með aukningu í huga geta ekki nálgast framleiðslurétt til þess. Segja má að bændur hafi lokast inni í þessum aðstæðum," sagði Halla Signý.

,,Könnun var gerð meðal bænda og þá voru 90% á því að halda óbreyttu ástandi áfram, þ.e. að halda í greiðslumarkið í mjólk. Sú niðurstaða ber auðvitað keim af því að ekki er komin fram nein önnur stefna sem er betri eða valkostur við núverandi kerfi heldur dvelja þeir áfram í óvissunni," sagði Halla Signý.

Í gildandi búvörusamningum er samningur um starfsskilyrði nautgriparæktar frá 2016. Sá samningur felur í sér stefnumörkun um breytingar á því kerfi sem hefur verið við lýði síðasta aldarfjórðung.

Meginstefið er að greiðslumark í mjólk ætti að fjara út á samningstímanum, bæði sem viðmiðun fyrir beingreiðslur og kvóti sem tryggir forgang á innanlandsmarkaði.

Önnur markmið samningsins eru að efla íslenska nautgriparækt, skapa greininni sem fjölbreyttust sóknarfæri og búa hana undir áskoranir næstu ára.

Samningnum er ætlað að hvetja til þróunar og nýsköpunar í greininni með heilnæmi og gæði afurða, velferð dýra og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.

Á þessu ári á að endurskoða hvort markmiðum samningsins hafi verið náð og hvort ástæða sé til að gera á þeim breytingar og að sú ákvörðun sem stefnt var að um afnám kvótans árið 2021 verði tekin til endurskoðunar.

,,Þess vegna skora ég á ráðherra að gera skurk í þessum málum og leysa þennan hnút," sagði Halla Signý.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress