Ráðherra virðist ætla að styrkja stöðu verslunarinnar

News

,,Hæstv. forseti. Íslenskur landbúnaður hefur verið stoð íslensks samfélags í gegnum tíðina, verið grunnur byggða um allt land og er í raun hryggjarstykkið í flestum byggðum landsins. Á síðasta kjörtímabili var farið í mikla vinnu við endurskoðun búvörusamninga, vinnu sem vissulega var tímabær því að við erum að fara inn í tíma sem krefjast róttækra breytinga á landbúnaði á Íslandi.

Samkvæmt tillögu atvinnuveganefndar var settur á fót samráðshópur sem fékk skýra starfslýsingu og átti m.a. að skoða markmið samninganna, loftslags- og umhverfismál, upplýsingagjöf til neytenda, upprunamerkingar og síðast en ekki síst samkeppnismál og starfsumhverfi.

Þessi hópur var hluti af sáttaferli sem menn litu á sem leið til heildrænnar og málefnalegrar nálgunar. Nú berast þær fréttir að hæstv. landbúnaðarráðherra sé byrjaður að taka til. Auðvitað þurfa menn að koma sér fyrir á nýjum stöðum og setja mark sitt á ný embætti en mér er hulin ráðgáta hvers vegna ráðherra kýs að skipta út þremur af fimm ráðherraskipuðum fulltrúum. Hvergi hef ég séð skýringu á því. Hvers vegna ekki bara öllum? Leyndust kannski í hópnum einstaklingar of hliðhollir bændum? Spyr sú sem ekki veit.

Nú boðar hæstv. ráðherra frumvarp um breytingar á búvörulögum strax á vormánuðum. Þar á að endurskoða úthlutun tollkvóta og undanþágur frá ákvæðum samkeppnislaga. Getur verið að þetta renni í gegnum alla þingflokka stjórnarinnar?

Þá velti ég fyrir mér hvert hlutverk fulltrúa atvinnurekenda er í hópnum. Hver er aðkoma heildsala að samningum bænda og ríkisins?

Hæstv. forseti. Fljótt á litið virðist ráðherra vera að styrkja stöðu verslunarinnar sem á enga aðkomu að samningunum. Samningurinn er við bændur og þeim ber samkvæmt honum að framleiða matvöru að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Fulltrúar bænda leggja áherslu á mikilvægi þess að sátt náist um íslenskan landbúnað. Það er okkur öllum mikilvægt. Útspil ráðherra virðist ekki vera lóð á þá vogarskál."

Þórunn Egilsdóttir í störfum þingsins 1. febrúar 2017. 

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress