Ræða formanns Framsóknar á miðstjórnarfundi 7. nóvember 2026
Notifications

Hugsjónir sem standast tímans tönn
Fundarstjóri, varaformaður, ritari og kæru félagar.
Þegar ég lít yfir salinn hér á Laugabakka fyllist ég auðmýkt og miklu stolti að fá tækifæri að vera í forystu þennan öfluga hóp Framsóknarfólks. Á hverjum einasta degi eru það sönn forréttindi.
En mikið er gaman að vera komin saman hér á Laugarbakka á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins. Það gleður mig sérstaklega að sjá hversu fjölmennur fundurinn er og hversu vel tókst til með sveitarstjórnarráðstefnuna okkar í gær. Hér er saman komið fólk alls staðar að af landinu.
Fólk sem hefur trú á samfélaginu okkar, vill láta gott af sér leiða og er tilbúið að leggja á sig mikla vinnu fyrir hugsjónir sínar.
Það er alltaf gaman að koma í Norðvesturkjördæmi, sem er ríkt af sögu og pólitík. Hér eru heimkynni Egils Skallagrímssonar og Grettis Ásmundarsonar. Þetta er kjördæmi mikilla sögupersóna, framfara einstaklinga og sterkrar samfélagsvitundar.
Og hingað liggja líka mikilvægar rætur Framsóknarflokksins. Úr þessu kjördæmi koma stjórnmálaskörunga á borð við forsætisráðherrana Steingrím Hermannsson, Ólafur Jóhannesson, og heilbrigðisráðherrann Ingibjörg Pálmadóttir og félagsmálaráðherrann Páll Pétursson og að sjálfsögðu varaformaðurinn og ritarinn. Hér eigum við gríðarlega öflugt sveitarstjórnarfólk, sem er sannarlega að láta að sér kveða og takk Sigurður Líndal, Nína og Eydís að sýna okkur glæsilega skólann ykkar!
Kæru félagar!
Í dag langar mig að ræða við ykkur um fimm mikilvæg málefni.
Í fyrsta lagi, erindi Framsóknarflokksins. Af hverju erum við hér og hvað stendur flokkurinn okkar fyrir? Í öðru lagi, stöðu flokksins. Í þriðja lagi, stöðuna í landsmálunum. Í fjórða lagi, nýja Framsókn. Hvernig við ætlum að byggja upp flokkinn, móta framtíðarsýn og vinna traust þjóðarinnar á ný. Og í fimmta lagi, 110 ára afmæli Framsóknarflokksins sem við fögnum í næsta mánuði.
En áður en lengra er haldið langar mig að byrja á einni einfaldri spurningu.
I. Erindi Framsóknarflokksins
Kæru félagar!
Af hverju erum við stödd hér á Laugarbakka um þessa helgi? Auðvitað veit ég að það er alltaf gaman á miðstjórnarfundum Framsóknarflokksins.
En þegar við spyrjum okkur þessarar spurningar af alvöru er svarið í raun mjög skýrt.
Við erum hér vegna þess að við viljum bæta samfélagið okkar.
Við erum hér vegna þess að við höfum trú á því að hugsjónir Framsóknarflokksins séu vel til þess fallnar að skapa betra samfélag fyrir okkur öll.
Og við erum hér vegna þess að við vitum að árangur verður ekki til af sjálfu sér. Hann verður til þegar fólk vinnur saman.
Þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður árið 1916 var íslenskt samfélag allt annað en það sem við þekkjum í dag. Ísland var fátækt land. Lífsbaráttan var erfið, samgöngur takmarkaðar og aðgangur að menntun og tækifærum fór eftir búsetu og efnahag.
Á þessum tíma tók fólk höndum saman og stofnaði samvinnufélög, kaupfélög, sparisjóði og önnur félagasamtök. Hvers vegna? Vegna þess að þau vissu að saman gætu þeir náð meiri árangri en hver í sínu lagi. Á þessum grunni varð Framsóknarflokkurinn til.
Flokkurinn varð ekki til til þess að verja forréttindi fárra. Hann varð til til þess að skapa tækifæri fyrir marga.
Hann varð til vegna þess að fólkið sjálft vildi hafa áhrif á eigin framtíð.
Framsóknarflokkurinn var stofnaður sem umbótaflokkur. Ekki sem flokkur sem vildi varðveita samfélagið óbreytt, heldur sem flokkur sem vildi breyta því til hins betra.
Og þess vegna heitum við Framsóknarflokkurinn.
Eysteinn Jónsson, einn merkasti leiðtogi flokksins, orðaði þetta af miklum skýrleika þegar hann fjallaði um hugsjónir okkar.
Hann sagði að: ,,Framsóknarflokkurinn hefði verið stofnaður til stuðnings sjálfsbjargarviðleitni almennings og samtökum fólksins í baráttunni fyrir frelsi og betra lífi.“
Það er stór hugsun. Og hún er jafn mikilvæg árið 2026 og árið 1916. Eysteinn lagði líka áherslu á að Framsóknarflokkurinn hefði aldrei byggt stefnu sína á ósveigjanlegum kenningakerfum eða einföldum uppskriftum sem ættu að leysa allan vanda.
Við höfum nefnilega aldrei trúað því að samfélaginu verði stjórnað með einni kreddunni, hvorki til vinstri eða hægri.
Við trúum á skynsemi.
Við trúum á reynslu.
Við trúum á jafnvægi.
Við trúum á samvinnu.
Og við trúum á fólk og viljum fjárfesta í fólki.
Okkar hugsjón er að manngildi sé ætíð sett ofar auðgildi. Þetta eru ekki bara falleg orð á blaði. Þetta er afstaða til þess hvernig samfélagi við viljum búa í.
Við viljum samfélag þar sem fólk getur skapað sér farsæla framtíð með eigin dugnaði, en þar sem enginn er skilinn eftir þegar á móti blæs.
Við viljum samfélag þar sem framtak einstaklinga fær að njóta sín, en þar sem við berum líka sameiginlega ábyrgð á grunnþjónustu, menntun og velferð.
Við viljum samfélag þar sem börn fá tækifæri óháð efnahag foreldra sinna.
Þar sem fólk getur byggt sér heimili.
Þar sem eldri borgarar búa við öryggi og virðingu.
Þar sem atvinnulífið getur blómstrað og skapað verðmæti.
Og þar sem fólk getur búið og starfað um allt land.
Þetta er erindi Framsóknarflokksins. Að finna sameiginlegar lausnir á verkefnum samfélagsins. Og þess vegna erum við hér á Laugarbakka í dag!
II. Staða Framsóknarflokksins – hvað hefur gerst?
Kæru félagar!
Ég hef fulla trú á því að með þessi gildi að leiðarljósi og trú á framtíðina getum við allt! Síðustu sex mánuðir hafa verið okkur í Framsókn nokkuð góðir. Og raunar hafa þeir sýnt okkur hversu öflugur flokkurinn okkar er þegar við stöndum saman.
Sveitarstjórnarkosningarnar 2026
Sveitarstjórnarkosningarnar í vor komu vel út. Við unnum stórsigra víða, varnarsigra annars staðar og ný framboð Framsóknar litu dagsins ljós. Alls staðar lagði fólk sig fram.
Í mínum huga voru sveitarstjórnarkosningarnar 2026 einar mikilvægustu kosningar í sögu Framsóknarflokksins. Því að þar var mikið í húfi. Við þurftum að sýna að þrátt fyrir erfið úrslit síðustu alþingiskosninga ætti Framsókn áfram sterkar rætur í íslensku samfélagi. Við þurftum að sýna að mannauður flokksins væri mikill. Og við þurftum að sýna að fólk treysti okkur áfram til góðra verka.
Og það tókst!
Við buðum fram á 26 stöðum á landinu og fengum kjörna fulltrúa á öllum þessum stöðum. Við erum með yfir 80 kjörna sveitarstjórnarfulltrúa og forystufólk. Við erum næststærsta stjórnmálaaflið á sveitarstjórnarstiginu.
Kæru félagar!
Það er ekki sjálfgefið. Það er árangur sem þið hafið unnið fyrir.
Og ekki nóg með það.
Framsókn hefur myndað meirihluta í fjórtán sveitarfélögum! Það er gríðarlega mikilvægt. Því sveitarstjórnarmálin eru hjarta íslenskra stjórnmála. Það er á sveitarstjórnarstiginu sem ákvarðanir um skóla, leikskóla, íþróttamannvirki, skipulagsmál, þjónustu við eldri borgara og nærumhverfi fjölskyldna eru teknar. Það er þar sem fólk finnur beint fyrir því hvort stjórnmálin virka.
Og þar er Framsókn í fararbroddi.
Ég gæti ekki verið stoltari af ykkur.
Ég vil jafnframt minna á að ég sagði við ykkur á flokksþinginu að 100 daga áætlunin okkar færi strax af stað.
Og það stóðst. Forysta flokksins heimsótti og fundaði með framboðum um allt land. Þetta voru frábærir fundir. Við hlustuðum á fólk, ræddum málefnin og fundum þann kraft sem býr í grasrótinni.
Þjóðaratkvæðagreiðslan um Evrópusambandið
Strax eftir sveitarstjórnarkosningarnar hófst undirbúningur næsta stóra verkefnis. Þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort hefja ætti að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Á síðasta flokksþingi okkar var samþykkt skýr afstaða um að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan Evrópusambandsins.
Við fylgdum þeirri stefnu.
Við stóðum vörð um þá grundvallarhugsjón að Íslendingar eigi sjálfir að ráða framtíð sinni og auðlindum þjóðarinnar. Þátttaka Framsóknarfólks í baráttunni var mikil og árangursrík. Bæði á vettvangi Áfram Íslands og Heimssýnar, en einnig með fundum okkar um allt land. Við fengum sérfræðinga í Evrópumálum til samtals og áttum fjölmargar góðar og málefnalegar umræður. Niðurstaðan varð skýr. Hinn 29. ágúst sögðu 53% kjósenda nei við því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Ekki kosningabarátta forsætisráðherra og svo kosningabarátta utanríkisráðherra er eitt það sérkennilegasta sem íslensk stjórnmál hafa séð. Fyrst var þjóðaratkvæðagreiðslunni flýtt án samráðs eða samvinnu við nokkurn. Þjóðaratkvæðagreiðslunni var flýtt og utanríkisráðherra vísaði meðal annars til breyttrar heimsmyndar, óvissu í alþjóðasamskiptum – sem gekk meðal annars út á að ekki væri hægt að treysta eins mikið á Bandaríkin og því þyrftu við í auknu mæli að treysta á Evrópusambandið.
En síðan hafa orðið mikil tíðindi. Hinn 22. september undirrituðu Bandaríkin, Danmörk og Grænland nýjan varnarsamning um framtíð Grænlands. Evrópa er í mjög kröppum dansi, efnahagslega og pólitískt. Og í þingkosningunum í Bandaríkjunum síðastliðinn þriðjudag unnu Demókratar stórsigur og náðu meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings.
Þetta sýnir hversu hratt alþjóðastjórnmálin geta breyst. Þess vegna er mikilvægt að spyrja: ,,Af hverju las utanríkisráðherra þjóðarinnar stöðuna í samskiptum við Bandaríkin svona rangt?“ Getur verið að ESB-þráhyggjan hafi villt henni algjörlega sýn? Svarið er augljóslega já. Því hef ég miklar áhyggjur af henni í næsta stóra máli Íslands en það er Bókun 35 og nálgun ráðherrans í því máli. Eitt mikilvægasta hlutverk utanríkisráðherra er að standa vörð um hagsmuni og sjálfsákvörðunarrétt Íslands. Ráðherrann er ekki fær um að gæta hagsmuna Íslands og því mun Framsókn standa vaktin! Þið getið treyst því kæru félagar!
En kæru félagar!
Eitt mikilvægasta framlag okkar í þessari baráttu var þátttaka unga fólksins. Ung gegn ESB! Þar sáum við nýja kynslóð Framsóknarfólks stíga fram af miklum krafti. Þau voru óhrædd við að taka slaginn. Þau voru málefnaleg, skynsöm, eljusöm og ástríðufull. Og þau höfðu trú á málstaðnum. Það gladdi mig sérstaklega að sjá hvernig unga fólkið okkar tók þátt í umræðunni, í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum og á fundum víða um land. Okkar unga fólk átti ríkan þátt í að breyta umræðunni, ekki síst meðal ungra kjósenda.
Þetta minnti mig á sögu ungmennafélaganna sem risu hér um landið í kringum aldamótin 1900 og áttu mikilvægan þátt í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Það voru ungir Íslendingar sem vildu hafa áhrif á framtíð landsins. Og það var nákvæmlega það sem við sáum í sumar. Þegar formaður ungra framsóknarmanna steig á svið á lokafundinum á Austurvelli fylltist ég stolti. Og hugsaði með mér:
Með svona ungt fólk í okkar framvarðasveit þurfum við ekki að óttast framtíðina.
Ég bið ykkur að gefa unga fólkinu okkar gott klapp!
III. Staða flokksins í landsmálunum
Kæru félagar!
Ég veit og skil að við viljum sjá hærri tölur í skoðanakönnunum. Það vil ég líka.
En sígandi lukka er best. Og það er eitt sem ég hef lært af stjórnmálunum: Það skiptir ekki aðeins máli hvar við stöndum í dag. Það skiptir máli hvert við ætlum. Og það skiptir ekki síður máli hvort við höfum úthald til þess að komast þangað. Við höfum nefnilega verið á þessum stað áður.
Mér er einkar minnisstætt vorið 2016. Ég var nýorðin utanríkisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannesson forsætisráðherra. Við vorum á leið til Bandaríkjanna til að taka þátt í hátíðardagskrá Baracks Obama Bandaríkjaforseta með leiðtogum Norðurlandanna. Á leiðinni út á flugvöll birtist skoðanakönnun. Framsókn mældist með um sex prósenta fylgi. Það var nú ekki beint skemmtilegt veganesti! En hvað áttum við að gera? Áttum við að snúa við? Auðvitað ekki! Við héldum áfram. Við mættum forseta Bandaríkjanna og öðrum leiðtogum Norðurlandanna og sinntum okkar verkefnum fyrir land og þjóð. Síðan var bara að vinna meira. Næsta stóra verkefni voru alþingiskosningarnar í október 2016. Það voru ekki auðveldar kosningar. Flokkurinn hafði gengið í gegnum erfiða tíma og formannsslag. Ég man vel að á þessum tíma þurfti ég sjálf að taka ákvörðun.
Átti ég að taka slaginn?
Auðvelda leiðin hefði verið að fara aftur í Seðlabankann. En auðvitað tók ég slaginn. Fyrir flokkinn. Fyrir fólkið í flokknum, sem treysti mér. Og síðast en ekki síst fyrir þær hugsjónir sem við stöndum fyrir. Við enduðum með tæplega tólf prósenta fylgi. Við fórum í stjórnarandstöðu, en vorum þar ekki lengi. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar féll eftir tæpt ár og aftur var boðað til kosninga.
Og hvað gerðist þá? Flokkurinn okkar klofnaði. Við misstum marga góða félaga. Það var sárt. En á sama tíma kom inn nýtt og öflugt fólk sem hafði trú á verkefninu. Við fórum í kosningarnar og fengum tæplega ellefu prósent. Og staðan eftir þær kosningar var merkileg.
Allir vildu mynda ríkisstjórn með Framsókn.
Hvers vegna? Vegna þess að fólk vissi að Framsókn var traustur samstarfsflokkur. Flokkur sem gat sameinað ólík sjónarmið. Flokkur sem var tilbúinn að axla ábyrgð. Og flokkur sem lagði áherslu á lausnir. Við tókum þátt í ríkisstjórnarsamstarfi sem skilaði mikilvægum árangri. Og í kosningunum 2021 vann Framsókn glæsilegan sigur og hlaut rúmlega sautján prósenta fylgi.
Af hverju er ég að rifja þetta upp? Vegna þess að þessi saga kennir okkur mikilvægan lærdóm.
Það kemur ekkert í staðinn fyrir þrautseigju.
Það kemur ekkert í staðinn fyrir trú á verkefninu.
Og það kemur ekkert í staðinn fyrir samstöðu.
Við vitum líka að kosningarnar 2024 voru okkur þungar. Því megum við aldrei gleyma. Þær minna okkur á að traust kjósenda er ekki sjálfgefið. Traust þarf að vinna sér inn. Og þegar það glatast að einhverju leyti þarf að endurvinna það með vinnu, trúverðugleika og skýrri stefnu.
Verkefni okkar núna er því einfalt. Við þurfum að snúa bökum saman. Þétta raðirnar. Efla flokksstarfið. Fá nýtt fólk til liðs við okkur.
Og leggja fram stefnu sem svarar raunverulegum þörfum íslensks samfélags.
Við ætlum ekki að bíða eftir því að fylgið komi af sjálfu sér.
Við ætlum að vinna fyrir því.
Og við ætlum að standa uppi sem sigurvegarar í kosningunum 2028!
III. Staðan í landsmálunum
Kæru félagar!
Stjórn landsins er ekki í traustum höndum. Og það er sérstaklega alvarlegt nú þegar íslenskt samfélag stendur frammi fyrir miklum efnahagslegum áskorunum. Við skulum byrja á því sem skiptir heimilin mestu máli. Vextir og verðbólga.
Verðbólga og vextir
Verðbólgan er enn of há. Í október mældist hún 5,9 prósent. Stýrivextir Seðlabankans eru átta prósent. Þetta eru ekki bara tölur í skýrslum. Þetta er raunveruleikinn sem íslenskar fjölskyldur búa við. Þetta er ungt fólk sem reynir að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Þetta eru barnafjölskyldur sem þurfa að greiða af húsnæðislánum, kaupa í matinn og greiða reikningana um hver mánaðamót. Þetta eru fyrirtæki sem þurfa að fjármagna reksturinn og taka ákvarðanir um hvort þau geti ráðið nýtt fólk eða ráðist í fjárfestingar. Há verðbólga og háir vextir draga úr lífsgæðum. Og þau draga úr framtíðartækifærum. Ég hef ítrekað lagt áherslu á það í mínum skrifum og viðtölum að verðbólga er ekki aðeins hagfræðilegt viðfangsefni. Hún er samfélagslegt réttlætismál. Hún leggst þyngst á þau sem hafa minnst svigrúm.
Þess vegna verður það að vera eitt af mikilvægustu verkefnum stjórnmálanna að ná verðbólgunni niður. En við verðum líka að gera það með skynsamlegum hætti. Það er nefnilega hægt að ná verðbólgu niður með því að kæfa efnahagslífið. Með því að draga svo mikið úr eftirspurn, fjárfestingu og atvinnu að hagkerfið stöðvast. Það er eins og að lækna sjúklinginn með því að drepa hann.
Slík hagstjórn er ekki sigur.
Hún er ósigur.
Því miður er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ófær um að ganga rösklega til verka. Tvö ár eru liðin af kjörtímabilinu og verðbólgan er hærri en þegar þau tóku við! Það er ekki nóg að segjast vera með sleggju, henda í óteljandi sjálfur og halda að þetta gerist að sjálfu sér! Við höfum glatað tveimur mikilvægum árum.
Ríkisstjórnin skilar ekki bara auðu í efnahagsmálum, hún er beinlínis skaðleg enda hafa skuldir heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs hækkað um tugi milljarða vegna þessa.
Fjárlögin 2027 – hver borgar reikninginn?
Kæru félagar!
Ríkisstjórnin talar mikið um hallalaus fjárlög. Og auðvitað er mikilvægt að ríkisfjármálin séu sjálfbær. Ég þekki mikilvægi þess vel úr störfum mínum í Seðlabankanum og við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Ríkið getur ekki lifað um efni fram til lengdar. En það er grundvallarmunur á því að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum með skynsamlegri forgangsröðun og því að senda reikninginn einfaldlega áfram til heimilanna. Það er það sem við höfum gagnrýnt við fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027. Ríkisstjórnin kynnir hallalaus fjárlög en spurningin sem við í Framsókn spyrjum er einföld:
Við höfum bent á að heimilin standi frammi fyrir auknum álögum vegna gjaldskrárhækkana, breytinga á sköttum og gjöldum og skerðingar á stuðningi.
Vaxtabætur eiga að falla niður.
Opinber gjöld hafa hækkað.
Ýmis útgjöld heimilanna vaxa á sama tíma og háir vextir halda áfram að þrengja að.
Þess vegna settum við fram Heimilissáttina.
Og þess vegna kynntum við reiknivélina á utreikningur.is, sem er pólitísk nýsköpun.
Með henni vildum við sýna hvað ákvarðanir ríkisstjórnarinnar þýða í raun fyrir íslensk heimili. Því tölur í fjárlagafrumvarpi segja ekki alla söguna. Við þurfum að sjá hvernig þær birtast við eldhúsborðið. Reikningurinn er einfaldlega of hár fyrir unga fólkið okkar! Við vitum það en ríkisstjórnin hefur ekki.
Það er með ólíkindum að svokallaður ,,Jafnaðarmanna flokkur Íslands“ skuli ekki standa betur að málum gagnvart tekjulægstu hópunum. Við í Framsókn verðum að veita ríkisstjórninni aðhald og bjóða uppá lausnir, þar sem þau eru ren.
Landsbyggðin og að byggja landið allt
Kæru félagar!
Við erum hér á Laugarbakka, í hjarta Norðvesturkjördæmis. Og þess vegna vil ég sérstaklega ræða stöðu landsbyggðarinnar. Þegar Eysteinn Jónsson fjallaði um hugsjónir Framsóknarflokksins lagði hann mikla áherslu á eitt grundvallaratriði:
Að þjóðin byggi landið allt.
Eysteinn skildi að efnahagslegt sjálfstæði Íslands byggðist á því að nýta auðlindir landsins, efla atvinnulíf um allt land og tryggja að fólki stæðu til boða raunveruleg tækifæri óháð búsetu.
Hann lagði áherslu á samgöngur, menntun, atvinnuuppbyggingu og öfluga innviði.
Hann skildi að byggðastefna væri ekki sérhagsmunamál landsbyggðarinnar.
Hún væri þjóðhagslegt hagsmunamál.
Og kæru félagar!
Þetta á ekki síður við í dag.
En hvað sjáum við nú?
Við sjáum ríkisstjórn sem leggur til nýjar álögur á samgöngur og atvinnustarfsemi, á sama tíma og mikil óvissa ríkir um nauðsynlegar innviðaframkvæmdir.
Skoðum nokkur dæmi:
Kílómetragjaldið á að hækka um 16%
Kolefnisgjald á að hækka.
Bifreiðagjald á að hækka.
Gistináttaskattur á að hækka.
Skattar á ferðaþjónustu hækka.
Fækka á lögregluumdæmum á landsbyggðinni
Ferðasjóður ÍSÍ er skertur
Fækkun sýslumannaembætta
Kæru félagar!
Þessi stefna ríkisstjórnarinnar þrengir augljóslega að fólkinu á landsbyggðinni! Við segjum NEI við þessari stefnu og höfnum því að kljúfa þjóðina með þessum hætti. Við erum ein þjóð, í einu landi!
Landsvirkjun – þjóðareign og traust
Og kæru félagar!
Ég vil líka nefna málefni Landsvirkjunar. Landsvirkjun er ein mikilvægasta eign íslensku þjóðarinnar. Áratuga uppbygging hefur skapað gríðarleg verðmæti, styrkt atvinnulífið og lagt grunn að efnahagslegu sjálfstæði okkar.
Við höfum á síðustu vikum fengið að kynnast vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í málefnum Landsvirkjunar. Flokkurinn sem auglýsti fyrir síðustu kosningar almannahagsmuni framar sérhagsmununum, hefur nú sýnt sitt rétta andlit þar sem sérhagsmunastefna Viðreisnar ræður för. Farsæll forstjóri Landsvirkjunar til sautján ára er flæmdur á brott og knúinn til afsagnar. Forstjóri sem á síðustu árum hefur rekið Landsvirkjun á þann veg að frá árinu 2020 hafa arðgreiðslur til ríkisins numið um 108 milljörðum króna, sem m.a. hafa verið notaðir til að fjármagna spítala, skóla og vegaframkvæmdir svo eitthvað sé nefnt.
En við ykkur kæru framsóknarmenn segi ég, Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar og Landsvirkjun skal áfram vera í eigu þjóðarinnar! Við ríkisstjórnina segjum við: ,,Látið Landsvirkjun í friði! Við fjármála- og efnahagsráðherra vil ég segja: ,,Það er bannað að plata í þessu starfi“!
IV. Ný Framsókn – frá hugsjónum til athafa
Kæru félagar!
Þá kem ég að því sem mér finnst mikilvægasta verkefni okkar.
Ný Framsókn felst í því að taka bestu hugsjónir 110 ára sögu okkar og færa þær inn í nýja tíma.
Þær verða að birtast í verkum okkar.
Og þess vegna vil ég í dag kynna mikilvægt skref í uppbyggingu nýrrar Framsóknar.
Við ætlum að setja á laggirnar átta öfluga málefnahópa sem munu móta stefnu Framsóknar til framtíðar.
Í fyrsta lagi: Lífskjarasáttmáli fyrir ungt fólk.
Við ætlum að leita leiða til að tryggja ungu fólki raunveruleg tækifæri til að eignast húsnæði, stofna fjölskyldu og byggja upp efnahagslegt sjálfstæði. Það á ekki að vera forréttindi að geta komið undir sig fótunum í íslensku samfélagi.
Í öðru lagi: Fæðufullveldi og framtíð íslensks landbúnaðar og sjávarútvegs.
Við ætlum að efla íslenska matvælaframleiðslu, tryggja að íslenskur landbúnaður og sjávarútvegur verði áfram undirstöður sjálfstæðis, öryggis og verðmætasköpunar þjóðarinnar. Fæðufullveldi er ekki aðeins atvinnumál. Það er þjóðaröryggismál.
Í þriðja lagi: Menntun 2035.
Við ætlum að móta metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir íslenskt menntakerfi. Menntun er eitt öflugasta tæki samfélagsins til að skapa jöfn tækifæri, efla framleiðni og tryggja að börnin okkar geti nýtt hæfileika sína til fulls. Við ætlum að byggja áfram á menntastefnunni til ársins 2030 og horfa enn lengra fram á veginn.
Í fjórða lagi: Byggð um allt land.
Hér ætlum við að fylgja eftir þeirri hugsjón Eysteins Jónssonar að þjóðin byggi landið allt. Við ætlum að móta lausnir sem tryggja öflugt atvinnulíf, öruggar samgöngur, góða þjónustu og raunveruleg búsetutækifæri um allt land. Sterk landsbyggð og öflugt höfuðborgarsvæði eru ekki andstæður. Þau eru forsenda hvort annars.
Í fimmta lagi: Utanríkisstefna 2035.
Við ætlum að móta framsýna utanríkisstefnu sem byggist á sjálfstæði Íslands, öryggi þjóðarinnar og öflugu alþjóðasamstarfi. Í síbreytilegum heimi verðum við að standa vörð um hagsmuni Íslands, rækta samband okkar við vinaþjóðir og tryggja að rödd Íslands heyrist á alþjóðavettvangi.
Í sjötta lagi: Gervigreindin og tækifæri Íslands.
Við ætlum að skoða hvernig Ísland getur orðið í fremstu röð í nýtingu gervigreindar. Hvernig við getum nýtt tæknina til að efla menntun, heilbrigðisþjónustu, nýsköpun og framleiðni. Og ekki síst hvernig við tryggjum að íslensk tunga og menning eigi framtíð í hinum stafræna heimi.
Í sjöunda lagi: Eldri borgarar og betra líf.
Við ætlum að móta lausnir sem tryggja eldra fólki aukið öryggi, sjálfstæði, góða þjónustu og tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu. Við eigum að líta á lengri lífaldur sem tækifæri fyrir samfélagið, um leið og við tryggjum að fólk geti lifað góðu og innihaldsríku lífi á efri árum.
Í áttunda lagi: Útlendingamál og samfélagsleg samstaða
Við ætlum að móta heildstæða og ábyrga stefnu í útlendingamálum. Við viljum að innflytjendur fái tækifæri til að læra íslensku, taka virkan þátt í atvinnulífinu og samfélaginu og virða grundvallargildi okkar um lýðræði, jafnrétti og mannréttindi. Gríðarleg fjölgun hefur átt sér stað í hælisleitendakerfinu og þessi þróun er ekki sjálfbær. Móta þarf skýrari stefnu í þessum málum.
Kæru félagar!
Þessir átta málefnahópar endurspegla sjálfan kjarna framsóknarstefnunnar.
Manngildi ofar auðgildi. Samvinna í stað sundrungar. Jöfn tækifæri óháð aldri, efnahag eða búsetu. Og sjálfstæði þjóðarinnar byggt á þekkingu, framtaki og ábyrgri nýtingu auðlinda.
Við ætlum að kalla til öflugt fólk innan flokksins og utan hans. Við ætlum að hlusta, ræða, leita nýrra hugmynda og móta raunhæfar lausnir. Við ætlum að nýta þann mikla mannauð sem býr í Framsóknarflokknum, í sveitarstjórnum, í grasrótinni og meðal unga fólksins okkar. Og við ætlum að opna flokkinn enn frekar fyrir nýjum hugmyndum og nýju fólki.
Nú ætlum við að virkja þennan kraft.
Því framtíð Framsóknarflokksins verður ekki aðeins byggð á því sem við höfum gert.
Hún verður byggð á því sem við ætlum að gera.
V. 110 ára afmæli Framsóknarflokksins
Kæru félagar!
Í næsta mánuði, hinn 16. desember, fagnar Framsóknarflokkurinn 110 ára afmæli sínu. Það eru mikil tímamót. Hundrað og tíu ár eru langur tími í stjórnmálum. Á þessum tíma hefur Ísland breyst úr fátæku samfélagi í eitt þróaðasta samfélag heims. Þessi framfarasaga er verk margra kynslóða og ólíkra stjórnmálaafla. En það verður ekki fram hjá því horft að saga Framsóknarflokksins og framfarasaga Íslands eru samofnar.
En saga Framsóknar er ekki bara afrekin heldur er hún er líka saga fólksins mætti á fundi, lagði fram hugmyndir og vann óeigingjarnt starf fyrir samfélagið sitt. Þetta er sagan sem við eigum að varðveita. Og þetta er sagan sem við eigum að vera stolt af.
Það er besta leiðin til þess að heiðra þá sem ruddu brautina á undan okkur.
Að halda áfram verkinu.
Að skapa ný tækifæri.
Að bæta samfélagið.
Og að standa vörð um þær hugsjónir sem hafa staðist tímans tönn.
Mig langar að nota þetta tækifæri til þess að þakka þingflokknum – þessum litla en öfluga þingflokki fyrir frábært samstarf, skrifstofu flokksins, framkvæmdastjóranum, varaformanni og ritara fyrir ómetanlega vinnu.
Lokaorð
Kæru félagar!
Í upphafi ræðu minnar spurði ég af hverju við værum stödd hér á Laugarbakka um helgi. Og nú, þegar við höfum rætt sögu okkar, stöðu flokksins, landsmálin og framtíðina, langar mig að snúa aftur að þeirri spurningu.
Af hverju erum við hér?
Við erum hér vegna þess að við trúum á Ísland.
Við erum hér vegna þess að við trúum á fólkið í landinu.
Við erum hér vegna þess að við vitum að samfélagið okkar getur orðið enn betra.
Við erum hér vegna þess að við höfum hugsjónir sem hafa staðist tímans tönn.
Og við erum hér vegna þess að við vitum að saman getum við breytt samfélaginu til hins betra.
Hér í Norðvesturkjördæmi, þar sem saga þjóðarinnar er svo áþreifanleg, er gott að minna sig á að stórir hlutir verða ekki til af sjálfu sér. Þeir verða til vegna þess að einhver hefur hugrekki til að hefjast handa.
Einhver hefur trú á verkefninu.
Og einhver er tilbúinn að leggja á sig vinnuna.
Þannig varð Framsóknarflokkurinn til fyrir 110 árum.
Þannig höfum við náð okkar stærstu sigrum.
Og þannig munum við byggja upp flokkinn okkar á ný.
Við ætlum að horfa fram á veginn.
Við ætlum að standa saman.
Við ætlum að vinna vinnuna.
Og við ætlum að sýna þjóðinni að Framsóknarflokkurinn á ekki aðeins glæsilega sögu.
Hann á líka glæsilega framtíð.
Takk fyrir, kæru félagar.
Áfram Framsókn!
Mynd tók Hörður Ragnarsson.



