Ríkisstjórnin hefur misskilið hugmyndafræðina um störf án staðsetningar

News

Undir dagskrárliðnum störf þingsins á Alþingi tók Stefán Vagn Stefánsson til máls og ræddi þar um atvinnumál á landsbyggðinni og störf án staðsetningar.

Ræðan í heild hljóðar svo:

Virðulegur forseti. Þau okkar sem hafa setið á Alþingi og starfað í sveitarstjórnum þekkja vel umræðuna um dreifingu opinberra starfa og mikilvægi þeirra fyrir hinar dreifðu byggðir. Það var eitt af verkefnum mínum sem sveitarstjórnarmanns að vinna að því að draga opinber störf til sveitarfélagsins með það að markmiði að styrkja samfélagið, auka fjölbreytni á vinnumarkaði, efla þjónustu og auka möguleika fólks til að snúa aftur heim eftir að hafa náð sér í menntun og reynslu. Þetta er hverju sveitarfélagi mjög mikilvægt og ég held að í grunninn séu allir sammála þeirri hugsun að dreifing opinberra starfa og þar með efling opinberrar þjónustu sé jákvætt og mikilvægt mál frá byggðalegu sjónarmiði. Má í þessu samhengi nefna verkefnið störf án staðsetningar sem gengur út á að ákveðin störf geti í raun verið unnin hvar sem er. Um þetta, virðulegur forseti, tala allir flokkar fyrir kosningar, mæra verkefnið og lofa að efla og fjölga ríkisstörfum um allt land. Það var raunin fyrir síðustu kosningar.

Síðan þá hefur ýmislegt gerst, virðulegur forseti, og langar mig að taka dæmi úr mínu nærumhverfi. Vinnumálastofnun var lokað án þess að segja nokkrum einasta manni frá því. Sýslumaðurinn var lagður af. Fyrir þinginu liggur frumvarp um að leggja niður heilbrigðiseftirlitið. Hugmyndin var eða er uppi um að fækka í yfirstjórn framhaldsskólanna og búa til svæðisskrifstofur. Nú síðast komu fréttir af því að leggja eigi lögreglustjórann af og sameina, sem mun þýða, hvað sem menn segja hér, minni þjónustu og lægra öryggisstig fyrir okkur, íbúa svæðisins.

Virðulegur forseti. Ég held að hæstv. ríkisstjórn hafi misskilið hugmyndafræðina um störf án staðsetningar. Til upprifjunar gengur hún út á að flytja störf á landsbyggðina en ekki frá henni.