Við vitum að það sem skiptir mestu máli er einfalt; að fólki líði vel, að það hafi tækifæri og að það geti treyst því að samfélagið vinni með því. Við viljum áfram vinna af ábyrgð, hlusta og taka skref sem skipta máli til lengri tíma. Lækka álögur þegar svigrúm er til, styrkja þjónustu þar sem þörfin er mest og byggja upp atvinnulíf sem stendur undir velferðinni. Við trúum því að sterk samfélög verði til þegar fólk tekur þátt. Þess vegna leggjum við áherslu á samráð, gagnsæi og raunverulegt samtal. Við viljum að sveitarfélagið sé samfélag þar sem er gott að ala upp börn, njóta ævikvöldsins eða flytja aftur heim. Samfélag sem tekur vel á móti nýjum íbúum, styður við fjölskyldur og sýnir eldri borgurum virðingu í verki. Við gerum ekki allt í einu en við ætlum að gera það sem skiptir máli, gera það vel og gera það saman. Þannig sækjum við fram.

Höldum áfram

Okkar áherslur eru atvinnumál til að standa undir velferðinni enda lagt mikla vinnu í uppbyggingu atvinnu í sveitarfélaginu. Málefni fjölskyldna hafa og fá mikið svigrúm í okkar vinnu og stefnu. Leikskólinn er fyrsta stig menntakerfisins. Framfærslukostnaður hefur hækkað mikið undanfarin ár. Leikskólagjöld eru stór útgjaldaliður hjá mörgum fjölskyldum, sérstaklega hjá ungu fólki og einstæðum foreldrum. 36 stunda leiðin er skynsamleg millileið; hún tryggir raunverulegan stuðning við fjölskyldur, hún er framkvæmanleg fyrir sveitarfélög, hún hjálpar til við að verja gæði þjónustunnar og hún tekur mið af mönnunarvanda og starfsumhverfi leikskóla. Tilgangurinn með gjaldfrjálsum leikskóla er að létta undir með fjölskyldum og tryggja jöfn tækifæri barna. Það markmið tapast að hluta ef kerfið verður svo stíft að fólk upplifir sig refsað fyrir örlitla umframþörf. Þess vegna er skynsamlegt; að hafa gjaldfrjálsan grunn, stigvaxandi greiðslur umfram hann og sanngjarnt þak á kostnaði.

Höldum áfram uppbyggingu leikvalla, þróum samþættingarverkefnið til eflingar samfélagsins og byggjum upp sterkt og samheldið samfélag þar sem öll upplifi sig velkomin og fá notið hæfileika sinna.

Kæru íbúar

Við stöndum á tímamótum þar sem framtíð samfélagsins mótast af þeim ákvörðunum sem við tökum saman í dag. Við viljum sveitarfélag sem byggir á ábyrgð, trausti og raunverulegum tækifærum fyrir öll. Samfélag þar sem fjölskyldur finna stuðning, börn fá að blómstra, eldri borgarar finna virðingu og atvinnulífið hefur kraft til að standa undir sterkri velferð.
Við höfum sýnt að við vinnum verkin, hlustum á fólkið og setjum hagsmuni samfélagsins í fyrsta sæti. Nú viljum við halda áfram þeirri vegferð með ykkur. Ekki með loforðum sem gleymast heldur með skýra sýn, ábyrg vinnubrögð og metnað fyrir framtíðina.

Þegar við stöndum saman getum við byggt samfélag þar sem fleiri vilja búa, starfa og ala upp börn og ungmenni. Samfélag sem horfir fram á veginn af bjartsýni og styrk.
Við óskum eftir atkvæði þínu á morgun.

Kjósum áfram uppbyggingu, samheldni og ábyrgð.
Kjósum framtíð sem við byggjum saman.

Frambjóðendur B-lista

Greinin á husavik.com