Sam­tal og sam­vinna get­ur skilað ár­angri

News

Átakshópur um aukið fram­boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næðismarkaði kynnti nýverið tillögur sínar. Hóp­ur­inn skilaði af sér 40 til­lög­um sem all­ar eru til þess falln­ar að bæta stöðu á hús­næðismarkaði. Til­lög­urn­ar varða allt frá al­mennu íbúðakerfi, hús­næðis­fé­lög­um og leigu­vernd, til skipu­lags- og bygg­ing­ar­mála, sam­göngu­innviða og rík­is­lóða, auk upp­lýs­inga­mála og eft­ir­lits­mála ým­iss kon­ar.

Niðurstaða hóps­ins er að tölu­verður skort­ur er á hús­næði hér landi, hvort sem er í þétt­býli eða dreif­býli, en sem stend­ur vant­ar á bil­inu 5.000-8.000 íbúðir á land­inu öllu. Um 10.000 nýj­ar íbúðir eru á leið á markaðinn á næstu þrem­ur árum en vegna fyr­ir­sjá­an­legr­ar fólks­fjölg­un­ar mun okk­ur vanta í kring­um 2.000 íbúðir í upp­hafi árs 2022.

„Vinna hóps­ins gekk vel og ég hef sagt að hún sé mik­il­væg­ur liður í sam­tali rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sveit­ar­fé­laga og heilda­sam­taka á vinnu­markað fyr­ir yf­ir­stand­andi kjaraviðræður. All­ir hags­munaaðilar eru sam­mála um að tryggja þurfi aukið fram­boð íbúða á hag­kvæm­an og skjót­virk­an hátt og bæta stöðu þeirra sem standa höll­um fæti á hús­næðismarkaði, ekki síst stöðu leigj­enda.“ Þetta skrifar Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, í grein í Morgunblaðinu 26. janúar. „Verk­efnið fram und­an er stórt en í góðu sam­starfi við aðila vinnu­markaðar og aðra hags­munaaðila er ég sann­færður um að við get­um náð til­ætluðum ár­angri. Hús­næðistil­lög­urn­ar sem kynnt­ar voru eft­ir sam­ráð stjórn­valda og aðila vinnu­markaður eru góðar. Þær sýna okk­ur að sam­tal og sam­vinna get­ur skilað ár­angri. Stjórn­völd eru til­bú­inn til sam­tals um frek­ari út­færsl­ur þess­ara til­lagna og um önn­ur mik­il­væg mál sem tengj­ast kjara­mál­um. En for­senda slíks er auðvitað alltaf sú að aðilar vinnu­markaðar nái sam­an um skyn­sam­leg­ar lausn­ir sín á milli. Ég er sann­færður um að ef all­ir leggj­ast á eitt er mögu­legt að ná hag­stæðri niður­stöðu þess­ara mála.“ Grein Ásmundar Einars Daðasonar í heild sinni má lesa hér.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress