„Sparisjóðirnir þýsku njóta trausts“

News

Willum Þór Þórsson, alþingismaður, sagði í umræðu á Alþingi um hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið að það megi „velta því fyrir sér hvort það sé vænlegur kostur að breyta öðrum ríkisbankanum í samfélagsbanka að þýskri fyrirmynd. Þá erum við um leið búin að skilgreina hvað samfélagsbanki er. Sparisjóðirnir þýsku njóta trausts. Um 40% af umfangi fjármálakerfisins þar eru sparisjóðir. Þeir vinna fyrir nærumhverfið og hafa það á stefnuskrá sinni að sinna viðskiptum einstaklinga og fyrirtækja á samfélagslegum forsendum. Það er gert í mjög nákvæmu regluverki, þ.e. það þýðir ekki að verið sé að niðurgreiða fjármálaþjónustu eða niðurgreiða vexti. Það yrði aldrei heimilt. Það felst hins vegar í því að farið sé með ákveðnum hætti með eigin fé. Það myndast ákveðin samfélagslegur sjóður sem fer til samfélagslegra verkefna.“ Ræða Willum Þórs Þórssonar, alþingismanns, í umræðu á Alþingi um hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið, 29. janúar 2019.

Í flokksþingssamþykktum Framsóknarmanna frá í mars á síðasta ári segir að „við endurskipulagningu fjármálakerfisins leggur Framsóknarflokkurinn áherslu á að fjármálakerfið þjóni fyrst og fremst heimilum og fyrirtækjum í landinu sem skapa störf og raunveruleg verðmæti á landsvísu.“

Síðan segir: „Framsóknarflokkurinn telur að annar ríkisbankanna eigi að vera áfram í eigu þjóðarinnar, með það markmiði að þjóna samfélaginu sem best. Til að bregðast við fákeppni á bankamarkaði er nauðsynlegt að samfélagsbanki hafi þann tilgang að bjóða góða þjónustu á sem bestum kjörum. Þannig má efla samkeppni í bankaþjónustu á landsvísu.“

„Í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar segir um fjármálakerfið að það eigi að vera traust og þjóna samfélaginu á hagkvæman og sanngjarnan hátt. Eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum er eitt það umfangsmesta í Evrópu og vill hæstv. ríkisstjórn leita leiða til að draga úr því. Ljóst er þó að ríkissjóður verður leiðandi fjárfestir í a.m.k. einni kerfislega mikilvægri fjármálastofnun. Þá liggur það bara fyrir. Lagt er upp með það í stjórnarsáttmála og það þýðir einfaldlega um leið að verið er að stíga varlega til jarðar,“ sagði Willum Þór. „Hvað eignarhaldið varðar, eins og fram hefur komið í umræðu um þessa skýrslu og í umfjöllun á vettvangi fjölmiðla, þarfnast það frekari ígrundunar hvernig farið verður með eignarhald ríkisins á tveimur af þremur stóru bönkunum, hvaða eignarform á við í því tilliti. Og það er mikilvægt að greina á milli eignarforms og eignarhalds. En eins og komið hefur fram í umræðunni, og könnun meðal neytenda, fer því fjarri að samstaða eða meirihlutaskoðun sé til staðar um það. Í því tilliti er nærtækt að vitna til könnunar sem starfshópurinn lét Gallup gera fyrir vinnu hvítbókarinnar, um viðhorf almennings til bankaþjónustu. Þar kemur m.a. fram að 61% er jákvætt fyrir eignarhaldi ríkisins. Þar kemur einnig glöggt fram það vantraust sem ríkir á íslenskum bönkum. Í samhengi úrbóta nefnir fólk m.a. háa vexti, dýra þjónustu, græðgi og há laun og ljóst að tiltrúin á kerfinu hefur ekki unnist til baka frá hruni,“ sagði Willum Þór.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress