Stafræn verksmiðja

News

„Meðal mikilvægustu verkfæra unga fólksins okkar, sem móta mun framtíð samfélagsins, eru samvinnuhæfni, frumkvæði, skapandi hugsun og það að geta unnið með upplýsingar og tækni á fjölbreyttan hátt. Fjórða iðnbyltingin krefur okkur með sínum öru samfélags- og tæknibreytingum um nýja nálgun á ýmis kerfi, þar með talið menntun og starfþjálfun af öllu tagi.“

Þetta skrifar Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í grein í Morgunblaðinu 11. janúar. Lilja Dögg ræsti hugmynda- og uppfinningakeppni nemendum efstu bekkja grunnsóla, deginum áður, sem er ætlað að raungera og útfæra hugmyndir sínar. Verkefnið er unnið í samstarfi Samtaka iðnaðarins, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Ríkisútvarpsins og framkvæmt með stuðningi mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Verksmiðjan er stafræn og til húsa á slóðinni ungruv.is/verksmidjan.

„Ég er bjartsýn á að grunnskólanemendur muni taka Verksmiðjunni fagnandi og hún muni opna hug þeirra, og foreldranna, fyrir þeim möguleikum sem fólgnir eru í fjölbreyttu námsframboði hér á landi,“ skrifar Lilja Dögg.

Sjá nánar: ungruv.is/verksmidjan Grein Lilju Alfreðsdóttur má lesa hér.

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress