Stefnuskrá Framsóknar og frjálsra: „Þetta snýst um Akranes“

Notifications

Framsókn og frjálsir á Akranesi hafa sett fram stefnuskrá fyrir kjörtímabilið 2026–2030 undir yfirskriftinni Þetta snýst um Akranes. Þar er lögð áhersla á skýra framtíðarsýn, raunhæfar lausnir og ábyrg vinnubrögð með hag íbúa, atvinnulífs og samfélagsins alls að leiðarljósi.

 

Stefnan byggir á því að rjúfa kyrrstöðu, nýta tækifæri og styrkja Akranes sem öflugt fjölskyldu‑ og atvinnusamfélag. Í stefnuskránni er fjallað um fjölbreytt málefni, m.a. atvinnuuppbyggingu, skipulag, samgöngur, velferð, íþróttir, menningu og sjálfbæran rekstur sveitarfélagsins.

 

Atvinnulíf, uppbygging og tækifæri til framtíðar

Lögð er áhersla á öflugt atvinnulíf og verðmætasköpun, með markvissri uppbyggingu á lóðum, hátæknistarfsemi og hafnsækinni starfsemi. Þar er horft til þess að efla Akraneshöfn, nýta tækifærin í ferðaþjónustu og undirbúa bæjarfélagið fyrir aukin umsvif með tilkomu Sundabrautar.

 

Fjölskyldur, velferð og samfélag

Í stefnuskránni er velferð íbúa sett í forgang. Þar er fjallað um leikskóla, skóla, frístundastarf, þjónustu við börn, ungmenni og eldri borgara, auk aukinna úrræða fyrir fatlað fólk og aðstandendur þeirra. Markmiðið er að tryggja raunveruleg úrræði og öfluga þjónustu á öllum æviskeiðum.

 

Sjálfbær rekstur og ábyrg stjórnsýsla

Einnig er lögð áhersla á sjálfbæran og traustan rekstur sveitarfélagsins, gagnsæi í fjármálum, stafræna þróun og skilvirkari stjórnsýslu. Með ábyrgri fjármálastjórn og betri nýtingu fjármuna er stefnt að því að skapa svigrúm til uppbyggingar og bættrar þjónustu án þess að auka álögur á íbúa.

 

Skýr stefna fyrir skipulag, umhverfi og innviði

Stefnan gerir ráð fyrir skýrri skipulags‑ og umhverfissátt þar sem jafnvægi er milli uppbyggingar, náttúru og lífsgæða. Þar er meðal annars fjallað um bættar samgöngur, hækkun sjóvarna, gatna‑ og stígakerfi, strandstíg, Garðalund og aðra mikilvæga innviði samfélagsins.

 

Stefnuskráin endurspeglar metnað Framsóknar og frjálsra til að vinna af ábyrgð, í samráði við íbúa og með skýra sýn til framtíðar. Hún er innlegg í áframhaldandi samtal um hvernig best sé að móta öflugt, sjálfbært og samheldið samfélag á Akranesi.


Hér má sjá stefnuskrána