Sveinbjörg Birna nýr formaður LFK

News

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir varaþingmaður var kosin formaður Landssambands framsóknarkvenna á 16. landsþingi þess haldið 7. september. Með Sveinbjörgu Birnu í framkvæmdastjórn landsambandsins eru Rakel Dögg Óskarsdóttir, Sunna Gunnars Marteinsdóttir, Björg Baldursdóttir og Anna Kolbrún Árnadóttir.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir skipaði 3. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í síðustu alþingiskosningum. Sveinbjörg Birna er fædd í Reykjavík 1973, stúdent frá Verzlunarskóla Íslands, lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 2001 og fékk héraðsdómslögmannsréttindi 2002.
Ný stjórn vill koma á framfæri þakklæti til fráfarandi formanns, Gerði Jónsdóttur og hennar stjórn, fyrir vel unnin störf.
Á þinginu voru fjölmargar ályktanir samþykktar og má sjá þær hér að neðan.
 

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

The future is determined at the centre

Topics

What We Do

Progress